Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Lovísa Arnardóttir skrifar 8. febrúar 2026 20:02 Gabríel var dæmdur árið 2023 til tveggja ára fangelsis og hefur nú lokið afplánun. Hann var handtekinn í dag vegna gruns um að tengjast stunguárás í miðbænum í gærkvöld. Samsett Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Lögregla vinni nú að því að safna að sér myndefni og gögnum um árásina.
Fyrst var greint frá því að Gabríel væri einn þeirra handteknu á vef DV í kvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Gabríel handtekinn í dag í heimahúsi í Reykjavík og er enn í haldi lögreglu. Samkvæmt heimildum var töluverður viðbúnaður við handtökuna, fjórir lögreglubílar og tveir ómerktir sérsveitarbílar. Aðgerðin á að hafa tekið um 45 mínútur. Gabríel Douane á að baki langan sakaferil þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur verið sakfelldur fyrir ítrekuð ofbeldisbrot auk tveggja annarra líkamsárása í fangelsinu á Hólmsheiði. Hann lauk afplánun dóms snemma í síðustu viku og losnaði þá úr fangelsi. Engin tengsl þolanda og gerenda Fjallað var um það fyrr í dag að karlmaður hefði verið handtekinn á þriðja tímanum í dag vegna árásarinnar en lögregla hafði leitað árásarmannsins frá því í nótt. Einnig kom fram að árásarmaður og þolandi væru báðir á þrítugsaldri og að ekki væri vitað um nein tengsl þeirra á milli. Sá síðarnefndi var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahús í nótt en útskrifaðist þaðan snemma í morgun. „Það eru þrír í haldi. Miðað við það sem við höfum núna eru engin stórkostleg tengsl þar á milli,“ segir Elín Agnes spurð um tengsl á milli þolanda og gerenda. Hún segir lögreglu vinna að því að fara yfir gögn og myndefni til að fá skýrari mynd á málið. Hún segir vitni að árásinni sem lögregla hafi rætt við. „Eins og staðan er núna erum við með þrjá einstaklinga í haldi í kjölfar þessarar aðgerðar. Þeir voru allir handteknir í dag,“ segir Elín Agnes. Höfðu upplýsingar um hverjir hefðu verið að verki Elín Agnes vill ekki staðfesta að Gabríel sé einn þeirra grunuðu. Hún segir lögreglu hafa haft upplýsingar og hafa fengið vísbendingar um það hverjir þeirra grunuðu væru áður en þeir voru handteknir. Fram kom í fréttum í dag að sá grunaði hefði verið handtekinn í íbúð í Reykjavík og að hann hefði þekkst á myndbandsupptöku. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Lögreglumál Reykjavík Næturlíf Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira