Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Kjartan Kjartansson skrifar 9. febrúar 2026 09:18 Framboðsmynd Ara Edwald fyrir Miðflokkinn. Miðflokkurinn Ari Edwald verður oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík í vor. Hann staðfestir þetta í færslu á samfélagsmiðli.
Uppstillingarnefnd Miðflokksins óskaði eftir því að Ari leiddi listann í borgarstjórnarkosningunum samkvæmt færslu Ara í morgun. „Ég hef tekið þeirri áskorun og tel að reynsla mín af rekstri stórra fyrirtækja og félagasamtaka, auk fyrri reynslu af pólitísku starfi, geti nýst vel í þeim verkefnum sem við blasa í Ráðhúsi Reykjavíkur,“ segir í færslunni. Miðflokkurinn á engan borgarfulltrúa eins og stendur en hefur mælst sögulega hár í skoðanakönnunum á landsvísu á undanförnum vikum og mánuðum. Helgi Áss Grétarsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gekk til liðs við flokkinn í síðasta mánuði. Fréttastofa reyndi að hafa samband við Ara í gær eftir að Miðflokkurinn birti stutt myndband um yfirvofandi tilkynningu um oddvita sinn í borginni en hann svaraði ekki. Miðflokkurinn staðfesti framboð hans á Facebook-síðu sinni. Rekinn eftir kæru fyrir kynferðisbrot sem var felld niður Ari, sem er á 62. aldursári, var meðal annars forstjóri fjölmiðlaveldisins 365 á sínum tíma, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og aðstoðarmaður ráðherra. Hann fór í leyfi frá starfi forstjóra Íseyjar, systurfélags Mjólkursamsölunnar, eftir að Vítalía Lazareva kærði hann og tvo aðra fyrir kynferðisbrot árið 2022. Hann var síðan rekinn úr starfinu. Kæran var síðar felld niður. Ari er með lögheimili í Portúgal. Sagt var frá því í nóvember að hann hefði keypt sér íbúð í Þorraholti í Garðabæ. Hann er skráður til heimilis í Garðabæ í símaskrá á netinu. Sonur Ara, Páll Edwald, sækist einnig eftir sæti á lista Miðflokksins í borginni. Hann tilkynnti um framboð sitt í síðustu viku. Þá er Ingibjörg Davíðsdóttir, kærasta Ara, þingmaður Miðflokksins. Lengi verið sjálfstæðismaður Í framboðstilkynningu sinni segist Ari ætla að leggja áherslu á grunnþjónustuna í borginni, leikskólakerfið, bílastæði og andstöðu við Borgarlínu. „Það er einboðið að taka þurfi til í rekstri borgarinnar og setja grunnþjónustuna í forgang. Borgarbúar vilja að hlustað sé á þeirra þarfir í stað þess að kerfið haldi bara áfram að þenjast út. Ég kann að snúa við erfiðri stöðu og veit hvað þarf til þess,“ segir Ari í færslu sinni. Ari hefur fram að þessu verið nátengdur Sjálfstæðisflokknum. Hann segist telja að skoðanir hans og áherslu hafi ekki breyst en að nú finni hann mestan samhljóm með Miðflokknum og treysta honum best til að koma þeim í framkvæmd. Endurómar Ari þar rök Helga Áss fyrir að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum á dögunum. Hélt hann því fram að Sjálfstæðisflokkurinn hefði yfirgefið hann en ekki öfugt. Fréttin hefur verið uppfærð.
Miðflokkurinn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira