Bæði lið í treyju Patta í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 10. febrúar 2026 11:21 Patrekur Freyr Sveinsson lést í bílslysi, aðeins 17 ára gamall. @srishokki Til stendur að fylla Skautahöllina í Laugardal í kvöld þegar leikið verður til minningar um Patrek Frey Sveinsson, íshokkístrákinn sem lést í bílslysi í síðustu viku.
Leikurinn er á milli SR og Fjölnis en Patti, eins og hann var kallaður, hafði spilað fyrir bæði þessi félög. Leikmenn liðanna munu heiðra minningu hans sérstaklega með því að klæðast upphitunartreyjum með nafni Patreks og númerinu hans, 12. „Hann var efnilegur leikmaður og mjög áhugasamur. Með mikinn metnað fyrir íþróttinni og félagsskapnum. Mikill liðsfélagi og skemmtilegur og líflegur strákur,“ sagði Bjarni Helgason, varaformaður SR, við Sýn í dag. „Þetta var áfall fyrir félagið rétt eins og fjölskylduna og hokkísamfélagið allt. Þegar svona áföll verða þá standa allir saman. Okkur langaði að minnast Patta og safna fyrir fjölskyldunni í leiðinni,“ sagði Bjarni. Félagarnir völdu tónlistina Allur ágóði af miða- og veitingasölu mun renna óskiptur til fjölskyldu Patta, og þá verður glæsilegur kökubasar á leiknum þar sem einnig verður safnað fyrir fjölskylduna. Leikurinn hefst klukkan 19:45 en áður verður minningarathöfn, mínútu þögn og viðhafnarpökkakast. Bjarni töframaður verður kynnir og spilar tónlist í anda Patreks sem félagar hans úr U18-liði SR völdu. „Hann byrjaði ferilinn í Fjölni og færði sig svo yfir til SR. Bæði hann og fjölskylda hans eru miklir SR-ingar, mamma hans í stjórn og pabbi hans mjög öflugur sjálfboðaliði,“ sagði Bjarni. Og Patta er sárt saknað af liðsfélögunum: „Já. Þetta eru erfiðir tímar fyrir þessa krakka og fyrir fjölskyldu hans alla.“ Hreimur og pökkakast Söngvarinn Hreimur Örn Heimisson syngur í fyrra leikhléi í kvöld, undir myndasýningu af Patta. Í seinna leikhléi verður svokallað pökkakast þar sem áhorfendur geta unnið glæsilega vinninga með því að kasta pökki sem næst miðju. Einn pökkur kostar 1.500 krónur og þrír kosta 3.000 krónur, að sjálfsögðu til styrktar fjölskyldu Patreks. Þá er bent á styrktarreikning fyrir frjáls framlög: 0511-14-077086, kt. 150886-3419.
Íshokkí Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira