Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Samúel Karl Ólason skrifar 10. febrúar 2026 16:10 Emmanuel Macron, forseti Frakklands. AP/Thibault Camus Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir tíma til kominn að Evrópa fari að standa í lappirnar á alþjóðasviðinu. Að ráðamenn þar beiti sér í takt við vald heimsálfunnar.
Á fundi með evrópskum blaðamönnum sagði forsetinn að auknar ógnir frá Kína, Rússlandi og nú mögulega Bandaríkjunum ættu að hrista slenið úr evrópskum ráðamönnum. „Erum við tilbúnir til að verða veldi?“ spurði Macron. Hann ítrekaði kall sitt eftir því að ríki Evrópusambandsins gæfu út sameiginleg skuldabréf til að fjármagna umtalsverða aukningu í hergagnaframleiðslu og hernaðaruppbyggingu, samkvæmt frétt BBC. Hann vildi einnig nota skuldabréfin til að standa vörð um nauðsynlegan iðnað. Macron hefur áður kallað eftir slíkum aðgerðum en þeim áköllum hefur verið mætt með tortryggni víða annarsstaðar í Evrópu. Ráðamenn annarra ríkja segja Macron vilja að öll Evrópa taki á sig skuldir vegna slæmrar fjárhagslegrar stöðu Frakklands, sem eigi erfitt með að fjármagna áðurnefnda uppbyggingu án aðstoðar. Macron viðurkenndi að aðstæður Frakka væru ekki góðar, miðað við mörg önnur ríki Evrópu. Frakkar hefðu ekki haft sömu gildi og ráðamenn margra ríkja í norðanverðri heimsálfunni varðandi sameiginlega ábyrgð og Frakkar hefðu þar að auki ekki þurft að gangast umbætur eins og mörg ríki Suður-Evrópu hefðu þurft að gera eftir fjármálahrunið 2008. Þær aðgerðir væru nú að borga sig verulega fyrir þau ríki. Hann sagði þó að markaðir heimsins væru í leit að nýju skjóli. Fjárfestar væru hræddir við að hafa öll sín egg í dollarakörfunni, ef svo má segja, og vildu draga úr áhættu. Þar væru stöðug lýðræðisríki sem byggðu á lögum og reglu mjög vænn kostur fyrir fjárfesta. Þjóðverjar segja nei Leiðtogar Evrópusambandsins munu koma saman á fundi í Brussel í næstu viku og verða skuldabréfin umræddu líklega eitthvað rædd þar. Hve alvarleg sú umræða verður er þó ekki ljóst. Ríkisstjórn Þýskalands hefur þegar hafnað tillögu Macrons um sameiginlega skuldabréfaútgáfu. Í frétt Politico segir að Þjóðverjar telji að skuldabréf séu óþarfi. Helsti vandi Evrópu sé framleiðni. Einn háttsettur þýskur embættismaður sem ræddi við blaðamann Politico sagði að Macron hefði rétt fyrir sér að skortur væri á fjárfestingu en það sneri frekar að fjárlagaáætlun ESB fyrir árin 2028 til 2034, sem er til viðræðu um þessar mundir. Ráðamenn í Berlín hafa kallað eftir þremur aðgerðum innan ESB. Innri markaður sambandsins verði styrktur, fleiri viðskiptasamningar verði gerðir við önnur ríki og hraðar og þriðja tillagan er að dregið verði verulega úr regluverki sambandsins og skriffinnsku. Ríkisstjórn Þýskalands hefur einnig kallað eftir aðgerðum til að draga úr fjárlagahalla Evrópusambandsins.
Frakkland Evrópusambandið Þýskaland Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Sjá meira