Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 07:59 Sturla Holm Laegreid með norsku landsliðskonunni Ingrid Landmark Tandrevold eftir verðlaunaafhendinguna í gær. Getty/Alexander Hassenstein Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum.
Fyrrverandi kærustunni finnst erfitt að fyrirgefa honum fyrir framhjáhaldið, jafnvel eftir ástaryfirlýsinguna. Viðtalið við Sturlu vakti gríðarlega athygli, náði á forsíður um allan heim og dreifðist hratt á samfélagsmiðlum. Hann tók kannski bara bronsið en gull- og silfurverðlaunahafarnir féllu algjörlega í skuggann eftir viðtalið. Fallegustu og bestu manneskju í heimi „Fyrir hálfu ári kynntist ég ástinni í lífi mínu, fallegustu og bestu manneskju í heimi. Fyrir þremur mánuðum gerði ég mín stærstu mistök og hélt fram hjá henni, og ég sagði henni frá því fyrir viku. Þetta hefur verið versta vika lífs míns,“ sagði hann grátstokkin í viðtalinu,“ sagði Sturla Holm Lægreid að fyrra bragði við norska ríkisútvarpið eftir að hafa unnið bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum. Fréttin í Verdens Gang í morgun.VG Verdens Gang hefur verið í sambandi við fyrrverandi kærustu Holm Lægreid. Hún óskar eftir nafnleynd í þessu máli, ósk sem VG samþykkti þar sem hún hefur ekki leitað eftir athygli fjölmiðla vegna sinna einkamála. Hún vill fyrst og fremst óska liðsfélaga Holm Lægreid, Johan-Olav Botn, til hamingju með gullverðlaunin í sömu keppni. Síðan snýr hún sér að viðkvæmara máli, framhjáhaldinu. Erfitt að fyrirgefa „Það er erfitt að fyrirgefa, jafnvel eftir ástaryfirlýsingu fyrir framan allan heiminn,“ sagði hún við VG. Því yfirlýsing Sturla Holm Lægreid fór um allan heim. Viðtalið var aðalfrétt í öllum norskum dagblöðum, náði á forsíður stórblaða eins og New York Times, Daily Mail og þýska Bild. Þetta var líka stór frétt hér á Vísi. Auk þess fór myndbandið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Valdi ekki að vera sett í þessa stöðu „Ég valdi ekki að vera sett í þessa stöðu og það er sárt að þurfa að standa í þessu. Við höfum verið í sambandi og hann veit skoðanir mínar á þessu,“ sagði hún enn fremur. Holm Lægreid sagði að framhjáhaldið hefði átt sér stað fyrir þremur mánuðum. Þáverandi kærasta hans fékk fréttirnar rétt fyrir Ólympíuleikana. Ekki tilbúinn að gefast upp „Ég sagði henni frá því fyrir viku og þá var það búið, auðvitað. Ég er ekki tilbúinn að gefast upp. Ég vona að með því að fremja félagslegt sjálfsmorð sýni ég kannski hversu heitt ég elska hana. Ég tek afleiðingunum af því sem ég hef gert. Ég sé eftir því af öllu hjarta,“ sagði Lægreid enn fremur. Hún vill koma á framfæri þakklæti til þeirra sem standa henni næst. „Til fjölskyldu minnar og vina sem hafa umvafið mig og stutt mig á þessum tíma. Einnig til allra annarra sem hafa hugsað til mín og sýnt mér samúð, án þess að vita hver ég er,“ sagði hún að lokum.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Noregur Tengdar fréttir Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02 Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. 10. febrúar 2026 15:48 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Sjá meira
Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02
Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. 10. febrúar 2026 15:48