Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 11:31 Sturla Holm Lægreid óskar hér Johan-Olav Botn til hamingju með gullverðlaunin sín í gær en stuttu seinna átti hann eftir að stela af honum þrumunni og öllum fyrirsögnunum í heimspressunni. Getty/Grega Valancic Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid er líklega umtalaðasti bronsverðlaunahafi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum en hann hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum eftir keppnina í gær þegar hann rændi sviðsljósinu af gull- og silfurverðlaunahafanum og gerði framhjáhald og sambandsslit sín að heimsfrétt.
Margir brugðust illa við því að hann deildi persónulegri sögu sinni á degi sem átti að vera gleðidagur annarrar norskra skíðaskotfimimanna. Holm Lægreid vill nú einbeita sér að Ólympíuleikunum og leggja málið að baki. Það var eftir hefðbundna keppnisgrein á Ólympíuleikunum sem Sturla Holm Lægreid notaði tækifærið til að tala um framhjáhald sitt gagnvart þáverandi kærustu sinni og að hann sæi mikið eftir því. Fyrrverandi kærasta hans segir aðstæðurnar sárar og óumbeðnar af hennar hálfu. Á sama tíma hafði Johan-Olav Botn unnið sín fyrstu Ólympíugullverðlaun nokkru sinni og gullverðlaunahafinn notaði tækifærið til að minnast hins látna Siverts Guttorms Bakken sem lést á hótelherbergi að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana. Margir brugðust illa við tímasetningu Holm Lægreids sem var tilneyddur til að svara. „Ég biðst innilega afsökunar á því að hafa deilt þessari persónulegu sögu á því sem var hátíðisdagur fyrir norska skíðaskotfimi. Ég er ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt,“ skrifaði Sturla Holm Lægreid í yfirlýsingu. Holm Lægreid vann sjálfur bronsverðlaun í greininni. „Afsökunarbeiðnin er til Johan-Olavs, sem átti skilið alla athyglina eftir gullið. Hún er einnig til fyrrverandi kærustu minnar, sem lenti óumbeðið í sviðsljósi fjölmiðla, ég vona að henni líði vel. Ég get ekki tekið þetta til baka en vil nú leggja þetta að baki mér og einbeita mér áfram að Ólympíuleikunum. Ég mun ekki svara frekari spurningum um þetta,“ skrifaði Sturla. Í morgun sagði fyrrverandi kærasta Holm Lægreids VG frá því hvernig hún upplifði þetta allt. „Ég valdi ekki að vera sett í þessa stöðu og það er sárt að þurfa að standa í þessu. Við höfum verið í sambandi og hann er meðvitaður um skoðanir mínar á þessu,“ skrifaði hún til VG en hún kom ekki fram undir nafni.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Noregur Tengdar fréttir Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59 Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02 Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. 10. febrúar 2026 15:48 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Sjá meira
Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59
Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02
Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. 10. febrúar 2026 15:48