Íhugar að bjóða fram til varaformanns Lovísa Arnardóttir skrifar 12. febrúar 2026 16:09 Valdimar tók við sem bæjarstjóri í Hafnarfirði í upphafi síðasta árs. Vísir/Vilhelm Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. „
Það hafa fjölmargir haft samband við mig og skorað á mig að gefa kost á mér og ég hef velt því fyrir mér og er enn að gera,“ segir Valdimar í samtali við fréttastofu. Kosið verður um formann, varaformann og önnur embætti stjórnar á flokksþingi flokksins um helgina. Kjör um nýja forystu flokksins hefst klukkan eitt á sunnudaginn samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá. Kjörnir verða formaður, varaformaður og ritari auk þess sem kosið verður í laga- og siðanefnd og skoðunarmenn reikninga og endurskoðandi verða kjörnir. Hann segir augljóslega stuttan tíma til stefnu en hann hafi verið að velta þessu fyrir sér síðustu vikur. „Ég þarf að taka ákvörðun, ég reikna með að gera það í dag eða á morgun. Ég hef verið að vega og meta þetta,“ segir Valdimar. Áskoranir víða um land Hann segir áskoranir til hans hafa komið víða að um landið og að þess vegna hafi hann verið að meta þessa ákvörðun með sínum nánustu alvarlega. Hann segir það ekki skipta máli fyrir þessa ákvörðun hvort Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen verði formaður flokksins. Hann hafi lýst yfir stuðningi við hvoruga þeirra. „Þetta er búið að vera að gerjast síðustu vikur, mér þykir vænt um þessar áskoranir. Ég væri búinn að segja nei ef ég væri ekki að íhuga þetta,“ segir Valdimar. Valdimar er á sama tíma að undirbúa framboð til sveitarstjórnar en hann er oddviti flokksins í Hafnarfirði. Hann segir uppstillingarnefnd við störf og að listinn verði kynntur um mánaðamót.
Framsóknarflokkurinn Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira