Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 12. febrúar 2026 18:34 Long hefur að undanförnu verið í skotlínunni vegna ummæla hans um Ísland sem 52. ríki Bandaríkjanna. AP Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjaforseta á Íslandi, flutti í dag vitnisburð fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Samþykki nefndin tilnefninguna er Long einu skrefi nær embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Long, sem heitir í raun William Long, var tilnefndur sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi af Donald Trump Bandaríkjaforseta sama dag og hann var rekinn úr embætti ríkisskattstjóra. Hann hafði gegnt því embætti í tvo mánuði þegar hann var látinn fara. Hann bar vitni fyrir utanríkismálanefndinni nú í dag og þakkaði sérstaklega Trump og Marco Rubio, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, fyrir tilnefninguna. Hann þakkaði einnig fjölskyldu sinni og varði síðan góðum tíma í að kynna vini sína til sögunnar sem voru viðstaddir vitnisburðinn. Fundinum var slitið án þess að nefndin greiddi atkvæði um tilnefningu hans. Ekki liggur fyrir hvenær atkvæðin verða greidd. Fari svo að nefndin samþykki tilnefninguna fellur það í hlut Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur að samþykkja eða hafna Long sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. „Bandaríkin og Ísland eiga sér langa sögu vináttu og samstarfs sem á rætur sínar að rekja til sameiginlegra efnahagslegra, öryggislegra, menningarlegra og mannlegra tengsla,“ sagði Long í vitnisburðinum. Vill gera þúsundir ferðamanna að milljónum Long taldi upp fjögur forgangsatriði til að styrkja enn frekar samband Bandaríkjanna og Íslands. Í fyrsta lagi ætlar hann að vernda bandaríska ríkisborgara á Íslandi og segir hann það hans fyrsta og mikilvægasta verkefni. Í öðru lagi hyggst hann efla öryggissamstarf ríkjanna þar sem Ísland gegni lykilhlutverki í öryggismálum beggja vegna Atlantshafsins og í þriðja lagi ætlar Long að efla samstarf á sviði efnahags- og orkumála. „Ísland er einnig með kraftmikið og nýsköpunarmiðað hagkerfi þar sem samstarf við bandarísk fyrirtæki býður upp á tækifæri til að knýja fram hagvöxt beggja þjóða. Verði ég settur í embættið mun ég setja í forgang að efla samstarf milli bandarískra og íslenskra fyrirtækja, vísindamanna og frumkvöðla til að knýja fram nýsköpun og skapa störf í báðum löndum,“ sagði sendiherraefnið. Að lokum vill Long styrkja samstarf á norðurslóðum. Hann segir Ísland í einstakri stöðu til að stuðla að sjálfbærri þróun og öryggi. Hann bætti einnig við að hann vonist til þess að þær þúsundir ferðamanna sem heimsækja Ísland verði að milljónum. Endurtekur afsökunarbeiðni vegna ummæla um 52. ríkið Í kjölfar vitnisburðar fá meðlimir öldungadeildarinnar tækifæri til að spyrja spurninga. Long var til umfjöllunar nýlega vegna ummæla hans um að hann hygðist gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna og sjálfur taka við stól ríkisstjóra. Orð hans féllu í grýttan jarðveg hérlendis og stóð til að mynda Jón Axel Ólafsson, fjölmiðlamaður með meiru, fyrir undirskriftarlista þar sem utanríkisráðherra er hvött til að hafa Long sem sendiherra. Long baðst síðan afsökunar á ummælunum og ítrekaði að hann hefði aðeins verið að grínast. Jeanne Shaeen, meðlimur í nefndinni, spurði Long út í ummælin og benti honum á að þrátt fyrir að hann hafi talið ummælin vera grín væri viðhorfið ekki endurspeglað í íslensku samfélagi.a Long sagðist viðurkenna að hafa sagt ummælin og segir með dæmisögu að hann ætti að vita að það er ekki hægt að segja neitt í Washington-borg og halda því leyndu. „Ég sagði þetta um 52. ríkið og það var algjörlega óviðeigandi en það var ekki eitthvað sem ég sagði af alvöru,“ sagði Long. Hann segist hafa beðið þá afsökunar sem móðguðust vegna orða hans. „Ég vona að fólkið á Íslandi geti gefið mér annað tækfæri til að sanna mig.“
Bandaríkin Sendiráð á Íslandi Donald Trump Tengdar fréttir Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi, en sá vakti hörð viðbrögð þegar hann gantaðist með að Ísland gæti orðið 52. ríki Bandaríkjanna á eftir Grænlandi. 15. janúar 2026 22:57 Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hefur verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem hann verður krafinn skýringa um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að bregðast við vegna brandara Billy Long um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. 15. janúar 2026 17:04 Sendiherraefnið biðst afsökunar Billy Long, mögulegur sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. Einungis hafi verið um grín að ræða. 15. janúar 2026 15:20 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira
Safna undirskriftum og segja Þorgerði að taka Long opnum örmum Undirskriftasöfnun er hafin til stuðnings Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi, en sá vakti hörð viðbrögð þegar hann gantaðist með að Ísland gæti orðið 52. ríki Bandaríkjanna á eftir Grænlandi. 15. janúar 2026 22:57
Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hefur verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem hann verður krafinn skýringa um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að bregðast við vegna brandara Billy Long um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. 15. janúar 2026 17:04
Sendiherraefnið biðst afsökunar Billy Long, mögulegur sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna. Einungis hafi verið um grín að ræða. 15. janúar 2026 15:20