Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 09:02 Finnski skíðastökkþjálfari braut reglur liðsins og var rekinn heim af Ólympíuleikjunum fyrir drykkju. Getty/ Andrew Milligan Finnski skíðastökkþjálfarinn Igor Medved þarf að yfirgefa Ólympíuleikana í Mílanó og Cortina eftir það sem lýst er sem „áfengistengdum vandamálum“.
Fjöldi finnskra fjölmiðla, þar á meðal ríkisútvarpið Yle, fjallar um atburðarásina í kringum Medved. Hinn 44 ára gamli, sem er aðalþjálfari finnsku skíðastökkvaranna, þarf að yfirgefa Ítalíu eftir það sem finnska ólympíunefndin lýsir sem broti á reglum og gildum liðsins. Finnish ski jump coach Igor Medved sent home from 2026 Olympics over alcohol issue https://t.co/xpJHu8KtE5 pic.twitter.com/oekXGS83zt— New York Post (@nypost) February 12, 2026 „Medved er farinn heim í dag. Þetta eru mál sem tengjast áfengisneyslu. Við tökum brot á reglum liðsins alvarlega og munum bregðast skjótt við,“ sagði Janne Hänninen, yfirmaður finnsku ólympíunefndarinnar. Atvikið er sagt hafa átt sér stað utan vinnutíma hans á leikunum en braut engu að síður í bága við reglur finnska liðsins. Slóvenski þjálfarinn, sem sjálfur hefur verið virkur skíðastökkvari, segist harma það sem gerðist. „Ég gerði mistök og ég er mjög miður mín. Ég vil biðja allt finnska liðið, íþróttamennina og einnig stuðningsmennina afsökunar. Ég vil að liðið fái frið til að einbeita sér að leikunum og halda áfram góðu starfi. Ég mun ekki tjá mig frekar um málið,“ sagði Igor Medved. Lasse Moilanen tekur nú við ábyrgðinni á finnsku skíðastökkvurunum. „Málið verður rætt við Igor strax eftir Ólympíuleikana í Mílanó. Nú viljum við einbeita okkur að því að tryggja keppnisaðstæður íþróttamannanna í Mílanó og róa ástandið í kringum liðið og Igor,“ sagði Marleena Valtasola, framkvæmdastjóri finnska skíðasambandsins.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira