Ellefu mörk Viggós dugðu skammt Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 15:54 Viggó fagnaði fleiri mörkum en aðrir í dag en tókst ekki að fagna sigri. Tom Weller/picture alliance via Getty Images Íslendingalið Erlangen þurfti að þola 27-21 tap fyrir sterku Lemgo-liði á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Fastlega var búist við heimasigri Lemgo í dag en liðið berst um Meistaradeildarsæti við topp deildarinnar. Erlangen hins vegar í neðri hlutanum, sjö stigum frá fallsætunum. Lemgo fór töluvert betur af stað og komst 11-6 yfir þegar fyrri hálfleikur var rúmlega hálfnaður. Viggó hafði á þeim tímapunkti skorað fjögur af sex mörkum Erlangen en Andri ekki komist á blað. Þá small vörn Erlangen og Andri komst í gang í sókninni. Erlangen skoraði fimm mörk gegn tveimur á síðustu tólf mínútum hálfleiksins – Andri Már með þrjú þeirra og Viggó tvö. Staðan í hálfleik var því 13-11 fyrir Lemgo og íslenski dúettinn með níu af ellefu mörkum gestanna. Lemgo byrjaði síðari hálfleikinn betur og byggði hægt og rólega upp forskot sitt á ný. Erlangen var aldrei líklegt til að jafna leikinn og honum lauk með sex marka sigri Lemgo, 27-21. Viggó Kristjánsson var langmarkahæstur á vellinum með ellefu mörk, þar af sjö af vítalínunni. Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur. Lemgo er eftir sigurinn með 30 stig í fimmta sæti deildarinnar, jafnt Kiel sem er sæti ofar, og aðeins tveimur stigum frá Fusche Berlín öðru sætinu. Erlangen er með 14 stig í tólfta sæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira