Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Eiður Þór Árnason skrifar 16. febrúar 2026 17:29 Brotin eiga að hafa átt sér stað í Angurmannalandi í Svíþjóð. Wikimedia Commons/Dalruwa Karlmaður í Svíþjóð er sakaður um að hafa selt eiginkonu sína í vændi og heimilað yfir 120 manns að brjóta á henni. Kynferðisofbeldið er talið hafa staðið yfir í nokkur ár áður en konan kærði manninn sem hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í haust.
Um þrjátíu menn eru sagðir eiga á hættu að verða dregnir fyrir dóm grunaðir um kynlífskaup en málið hefur verið í rannsókn um nokkurt skeið. Jafnréttismálaráðherra Svíþjóðar líkir því við mál hinnar frönsku Gisèle Pelicot. Talið er að brotin hafi átt sér stað í yfir þrjú og hálft ár í Angurmannalandi, héraði í norðurhluta Svíþjóðar. Sænski ríkismiðillinn SVT greinir frá en til viðbótar við þá 120 sem sagðir eru að hafa brotið á konunni í eigin persónu bætast við stafræn kynferðisbrot. Eiginmaðurinn neitar sök og ganga hjónin nú í gegnum skilnað. Ekki allir ákærðir Saksóknari segir að ekki verði allir grunaðir kynlífskaupendur ákærðir. Ástæðan sé skortur á tíma og fjármagni þar sem um tvö ár í viðbót taki að rannsaka önnur brot í málinu. Til stendur að gefa út ákæru á hendur eiginmanninum 13. mars, að sögn saksóknara. Eiga réttarhöld að hefjast skömmu síðar. Að sögn SVT var kynlífsþjónusta konunnar auglýst á nokkrum vefsíðum. Fyrir tæpum tveimur árum sætti maðurinn rannsókn vegna gruns um líkamsárás gegn sömu konu. Rannsóknin var þá látin niður falla en hefur nú verið tekin upp aftur, samkvæmt saksóknara. Ráðherra harðorður Nina Larsson, jafnréttismálaráðherra Svíþjóðar, líkir málinu við Pelicot-málið í Frakklandi þar sem þáverandi eiginmaður Gisele Pelicot byrlaði henni ólyfjan og bauð miklum fjölda manna að brjóta á henni í um áratug. „Karlar eiga að láta það vera að kaupa og selja líkama kvenna. Fréttir fjölmiðla um „sænska Pelicot-málið“ eru átakanlegar og viðbjóðslegar,“ skrifaði jafnréttismálaráðherrann í dag á samfélagsmiðilinn X, áður Twitter. Hefur áður hlotið dóm Sænski ríkismiðillinn greinir frá því að eiginmaðurinn hafi áður verið dæmdur fyrir líkamsárás, ólögmæta nauðung og brot á vopnalögum, og afplánað fimm mánaða fangelsisdóm. Þar að auki hafi hann verið ákærður fyrir gróf bókhaldsbrot, með því að hafa látið hjá líða að færa til bókar tekjur í fyrirtæki sínu upp á um þrjár milljónir sænskra króna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Svíþjóð Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira