Þverpólitísk sátt um mannvonsku Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar 17. febrúar 2026 08:00 Samstæða skautunar og mismununar Sjaldan gerist það að allt þingfólk Alþingis samþykki eitt og sama frumvarpið og í þau skipti sem það hefur gerst er það oft í þágu mannréttinda. Í gær kusu hins vegar öll gegn mannréttindum þegar tillaga ríkisstjórnarinnar um að svipta flóttamenn sem brjóta af sér vernd auk dvalar- og atvinnuleyfis var samþykkt MÓTMÆLALAUST! Nú mega stjórnvöld afturkalla alþjóðlega vernd flóttamanna sem hafa fengið endanlegan dóm fyrir alvarleg afbrot eða ef gildar ástæður eru taldar fyrir því að álita þá hættulega öryggi ríkisins. Einnig er þetta heimilt ef afbrot eru endurtekin og ógna allsherjarreglu eða almannahagsmunum. Þó er ekki skýrt hvaða afbrot þetta eru, sem þýðir að stjórnvöld hafa þó nokkuð rúmar heimildir til þess að ákveða hvað þau telja falla þar undir. Hvers vegna hættum við að vera leiðandi mannréttindamiðuð þjóð? Ríkisstjórnin ber fyrir sig að með lagabreytingunni sé ætlað að gæta samræmis við norræna löggjöf. Norræna löggjöfin, og nú sú íslenska, er þó einfaldlega ómannúðleg. Íslendingar eiga ekki að þurfa að smána sig til að taka upp slæmar útfærslur Norðurlandanna heldur ættum við að hafa mannréttindi fyrir öll að leiðarljósi, alltaf, líka fyrir þau sem afplána eða hafa afplánað dóma. Að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða þegar mál hefur ekki fengið niðurstöðu innan tiltekins tíma er hárrétt nálgun. Með breytingu þar á er verið að feta hættulegar brautir þar sem stjórnvöld geta með geðþótta hverju sinni metið hverja þau telja óæskilega. Hver á að hafa eftirlit með því hvernig ákvæðinu verður beitt? Það er ljóst að þessi breyting mun bitna á fólki í mjög viðkvæmri stöðu og hætt er við að þetta sé einungis byrjunin á vegferð ríkisstjórnarinnar að herða útlendingalöggjöfina enn frekar. Hver er næstur? Hætta réttindi að skipta máli þegar við brjótum af okkur? Afleiðingar afbrota eiga að fela í sér betrun og við sem þjóð höfum lengi talað fyrir og trúað á það er betrunar- og endurhæfingarstefna sem á að vera til staðar í fangelsunum okkar. Með því að svipta fólki vernd sem ætti í staðinn að fá aðstoð og tækifæri til betrunar er verið að láta undan þrýstingi frá fjarhægriflokkum og við þurfum alfarið að standa saman gegn því. Völd, val og frelsi Við veljum, kjósum og höfum valkosti þegar það kemur að hvernig við háttum samfélagssáttmálanum okkar allra á milli. Ekkert okkar græðir þegar valdbeitingarákvæði í lögum landsins eru tekin upp, óskilgreind og beitt eftir hentisemi þeirra valdameiri gegn jaðarhópum. Ef okkur hefur ekki tekist það verkefni að vernda mannréttindi þurfum við hreinlega að gera betur í stað þess að gefast upp og skerða þau réttindi sem varða okkur öll. Líka þeirra sem brjóta af sér. Schengen-samstarfið hefur stuðlað að góðum og bætandi samskiptum við samstarfsþjóðir og hefur byggt á trausti og vilja til frjáls flæðis fólks þjóða á milli til að mennta sig, starfa og lifa á eigin forsendum. Frelsið sem felst í Schengensamstarfinu er mikilvægt fyrir þjóðina í heild, fyrir menningu, tengsl og þroska því í einangrun felst hvorki öryggi né velsæld. Höfundur er formaður Pírata á Íslandi og fyrrum formaður Pírata í Evrópu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Píratar Alþingi Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar