Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 15:41 Colbert var vægast sagt ekki sáttur við lögmenn CBS og FCC. Stephen Colbert, sem stýrir þættinum Late Show á CBS í Bandaríkjunum, var meinað að birta viðtal við James Talarico, þingmann Demókrataflokksins á ríkisþingi Texas. Það voru lögmenn CBS sem bönnuðu birtingu myndbandsins, á grunni væntanlegra nýrra viðmiða frá Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) um suma spjallþætti.
Lögmennirnir fóru einnig fram á við Colbert að hann ræddi málið ekki í þætti sínum en þeirri beiðni varð hann ekki við. Viðtalið var svo birt á Youtube-síðu þáttarins. Í þættinum sem birtur var vestanhafs í gærkvöldi byrjaði Colbert, samkvæmt Hollywood Reporter, að útskýra það að forsvarsmenn FCC breyttu nýverið viðmiðum stofnunarinnar um gamla reglu í bandarísku sjónvarpi og útvarpi um að frambjóðendur stjórnmálaflokka eigi að fá jafnan tíma í umfjöllun. Spjallþættir höfðu verið undanþegnir þessari reglu í áratugi en Brendan Carr, sem stýrir FCC, gaf til kynna í síðasta mánuði um að hann ætlaði sér að fella þessa undanþágu úr gildi og vísaði hann til þess að forsvarsmenn þessara þátta væru keyrðir áfram af pólitískri hugsjón. Ef undanþágan verður felld úr gildi þyrftu frambjóðendur úr báðum flokkum vestanhafs að fá jafn mikinn tíma í spjallþáttum á sjónvarpsstöðvum sem heyra undir FCC. Carr, sem er einn af höfundum hins umdeilda plaggs Project 2025, hefur gengið hart fram gegn spjallþáttum vestanhafs og því sem hann sér sem frjálslynda slagsíðu í fjölmiðlum. Hann spilaði stóra rullu í því þegar þáttur Jimmys Kimmel var tekinn tímabundið úr loftinu. Eins og frægt er þá var Colbert tilkynnt í fyrra að samningur hans við CBS yrði ekki framlengdur og að þátturinn yrði lagður niður. Colbert hefur lengi verið mjög gagnrýninn á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, en um svipað leyti og þessi ákvörðun var tilkynnt greiddu eigendur CBS í Paramount Trump bætur vegna viðtals fréttaskýringaþáttarins 60 mínútna við Kamölu Harris þegar hún og Trump börðust um forsetaembættið. Greiðsla þessi var harðlega gagnrýnd á þeim grunni að um mútur væri að ræða. Colbert var meðal þeirra sem héldu þessu fram. Skömmu síðar samþykkti ríkisstjórn Trumps samruna Paramount og Skydance. Sjá einnig: Þjónkun við Trump? CBS leggur niður Late Show Samkvæmt Hollywood Reporter hefur FCC hafið rannsókn á ABC og spjallþættinum The View, eftir að þáttastjórnendur þar tóku viðtal við Talerico. Colbert sagði í þætti sínum í gær að ef einhver væri keyrður áfram af pólitík þá væri það Carr sjálfur. Gaf þáttastjórnandinn til kynna að Carr ætti að fara í rassgat og bætti við: „Segjum hlutina berum orðum. Ríkisstjórn Donalds Trump vill þagga niður í öllum þeim sem segja eitthvað slæmt um Trump í sjónvarpi, því það eina sem Trump gerir er að horfa á sjónvarpið.“ Colbert vísaði einnig til þess að það væru aðallega hann og Jimmy Kimmel sem þetta kæmi niður á. Hann sagði að þeir tveir hefðu talað um væntanlega niðurfellingu Carr á áðurnefndri undanþágu og spilaði viðbrögð hans um að þáttastjórnendurnir gætu farið á aðrar sjónvarpsstöðvar, sem heyrðu ekki undir FCC. Þá vísaði hann einnig til þess að Carr hefði gert ljóst að hann ætlaði sér ekki að fella úr gildi undanþágu spjallþátta í útvarpi, þar sem þáttastjórnendur þykja í flestum tilfellum mjög íhaldssamir. Þessi ummæli Colberts má sjá í spilaranum hér að neðan. Hér að neðan má svo sjá viðtal Colberts við James Talarico.
Bandaríkin Donald Trump Fjölmiðlar Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira