Sögulegur áfangi Örnu eftir „stranga og langa“ vegferð Aron Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2026 08:30 Arna Sigríður er á leið á vetrarólympíumót fatlaðra þar sem hún verður fyrsta íslenska konan til að keppa í skíðagöngu. Mynd: ÍF Ísfirðingurinn Arna Sigríður Albertsdóttir brýtur blað í íþróttasögu Íslendinga þegar að hún keppir á vetrarólympíumóti fatlaðra á Ítalíu í næsta mánuði. Hún er þakklát fyrir tækifærið og ætlar að gefa allt í botn á mótinu eftir langa og stranga vegferð frá örlagaríku skíðaslysi árið 2006.
Arna verður fyrsta íslenska konan sem keppir í skíðagöngu á vetrarólympíumóti fatlaðra og um leið verður hún þá fyrst íslenskra kvenna til að hafa bæði tekið þátt í sumar og vetrar útgáfu mótsins en árið 2021 keppti hún í handahjólreiðum í Tókýó. Arna var nær búin að gefa upp vonina um boðsæti á mótinu þegar að það varð ljóst að hún færi til Ítalíu seint á mánudaginn síðastliðinn „Við sóttum um boðsæti á mótið, ég tryggði mig sem sagt ekki inn á það þar sem ég er frekar nýbyrjuð í skíðagöngu. Ég vissi að svarið kæmi á mánudaginn, átti von á því að því að það kæmi kannski í um morguninn eða um hádegisbilið og var því orðin smá svartsýn þegar að svarið kom loksins klukkan hálf fimm seinna um daginn.“ Léttir og gleði gerðu vart um sig. „Ég var alveg ótrúlega glöð með þetta og ekki alveg að trúa þessu. Fer svo bara í að hringja í alla heima og segja þeim frá þessu. Það var alveg ótrúlega gaman að taka þau símtöl. Ég er mjög glöð yfir því að fá þetta tækifæri. Ég átti kannski ekkert endilega von á því að fá það.“ Ströng og löng vegferð Fyrir um nítján árum síðan, þegar að Arna Sigríður var sextán ára gömul, lenti hún í alvarlegu slysi í skíðabúðum í Noregi þar sem að hún datt, lenti á tré og hlaut mænuskaða og er nú lömuð fyrir neðan brjóst. Hún fann sinn farveg í íþróttum eftir það í handahjólreiðum en skipti nýverið yfir í skíðagöngu. „Þetta hefur náttúrulega verið ströng og löng vegferð fyrir mig alveg síðan að ég slasaðist. Ég að reyna finna mína íþrótt og líf mitt síðustu árin hefur svolítið verið bara í íþróttum, ég lærði íþróttafræði og hef alltaf verið að skoða eitthvað nýtt, finna ný tækifæri.“ „Ég finn mig í handahjólreiðunum eftir að ég hlýt mænuskaða en fyrir slysið æfði ég og keppti í alpagreinum á skíðum. Allir sem eru í því að hjóla á Íslandi vita af þessum löngu vetrarmánuðum þar sem maður er inni að æfa á æfingahjóli sem er ekkert sérstaklega skemmtilegt. Ég fann skíðagönguna svona út frá því sem mögulegt útivistartæki til þess að komast aðeins út yfir veturinn, því þegar það er snjór á Íslandi þá er erfitt að komast um í hjólastól. Þá er það bara fyrst og fremst geggjað frelsi sem fylgir því að komast út og ferðast um á gönguskíðum.“ Arna Sigríður keppti í handahjólreiðum á sumarólympíumóti fatlaðra í Tókýó á sínum tíma ÍF Og síðastliðið ár hefur Arna helgað sig skíðagöngunni. „Ég hef verið að læra á tæknina á bakvið þetta því eftir smá bras í hjólreiðunum fann ég að ég vildi skipta um umhverfi og hafa skíðagönguna sem aðal íþróttina. Þar tel ég mig hafa grætt mikið á því að hafa verið mikið á skíðum sem barn. Mér finnst ótrúlega gaman og gott að geta verið úti í snjónum og náttúrunni. Ég held það eigi alveg frekar vel við mig og er því ótrúlega glöð að hafa fundið gönguskíðin.“ Allur krafturinn í höndunum Í skíðagöngunni eru átökin mikil fyrir Örnu sem treystir alfarið á styrkinn í höndunum til þess að koma sér áfram. „Ég er með lamaða kviðvöðva og því ekki með neina miðju til þess að hjálpa til við að ýta mér áfram og geng því hundrað prósent á höndunum. Brekkur eru mjög erfiðar, bæði upp og niður. Ég hef ekki kviðvöðvana til að hjálpa mér í beygjum og það tók mig langan tíma að læra tæknina en svo er allt annað á höndum. Þetta er virkilega krefjandi sport, alveg mjög erfitt. Svo eru fleiri sem eru sitjandi í skíðagöngu sem hafa kannski misst útlimi, til að mynda fótleggi og þá nota þeir kviðvöðvana mikið sem og allar mjaðmirnar til að koma sér áfram.“ „Líkamlegt hreysti hjálpar rosalega mikið í minni stöðu. Það reynir mikið á hendurnar sama hvað ég tek mér fyrir hendur í hversdeginum. Hvort sem það er að fara í sturtu, keyra með höndunum eða taka hjólastólinn, fara upp og niður kanta og rampa. Að vera í góðri þjálfun hjálpar til og upp á andlegu hliðina að gera eru áhrifin ekkert síðri. Að fá útrás, geta hreyft sig, setja sér markmið, reyna að ná þeim markmiðum og allt það. Svo þetta félagslega. Það skemmtilega við þetta keppnisumhverfi er, því nú hef ég verið að keppa í gegnum tíðina og farið á mörg mót, að það er svo gaman að hitta fólk sem er í sömu stöðu og í sömu íþróttum og maður sjálfur. Maður lærir svo mikið af þeim. Það er mjög mikill plús.“ Gefur allt í þetta Á Paralympics eru þrír flokkar í skíðagöngu: blindir og sjónskertir, standandi og svo sitjandi. Innan hvers flokks fyrir sig eru svo nokkrir fötlunarflokkar. Á komandi móti mun Arna keppa í sprett göngu sem og tíu kílómetra göngu. Hún er nú í æfingabúðum í Noregi og heldur þaðan beint yfir til Ítalíu. „Ég er núna úti í Beitostølen í Noregi, var komin út áður en ég vissi að ég kæmist inn á vetrar Paralympics. Ég næ því alveg tæpum þremur vikum hérna í æfingabúðum sem er alveg frábært. Svo í byrjun mars fer ég yfir til Ítalíu og næ góðum æfingum þar. Það er svolítið mikill munur á hitastigi og snjó milli þessara staða. Hér í Beitostølen eru mínus fimmtán gráðu frost á meðan að það verður hlýtt á Ítalíu í mars. Það verður því fínt að eiga nokkra æfingadaga þar líka. Væntingarnar eru hóflegar. Ég er búin að vera skíða í ár og er að fara keppa á móti stelpum sem eru búnar að vera skíða í tugi ára, það eru mjög góðir íþróttamenn í þessari keppni og stór nöfn. Mitt markmið er bara að ná að klára mig alveg, ná að undirbúa mig vel og gefa allt í þetta.“
Ólympíumót fatlaðra Skíðaíþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Sjá meira