Sparar ekki stóru orðin í garð Íslendingsins sem gæti farið alla leið í boltanum Aron Guðmundsson skrifar 18. febrúar 2026 13:02 Marten Leon hefur skrifað undir samning við danska félagið Bröndby Mynd: Bröndby Marten Leon Johannsson, 16 ára gamall íslenskur markvörður, hefur gengið til liðs við danska liðið Bröndby frá HK. Marten er yfir tveir metrar á hæð og þykir einn efnilegasti markvörður Norðurlandanna. Þjálfari hans hjá HK telur hann geta farið alla leið í íþróttinni.
Greint var frá félagsskiptum Martens til Bröndby í gær og er haft eftir Jens Mikkel Frølunde, sem sér um leikmannamál hjá akademíu félagsins, að í honum sé félagið að fá afar efnilegan markvörð. „Hann hefur heimsótt okkur og æft hér í nokkrum sinnum og í hvert einasta skipti hefur hann heillað okkur með hæfileikum sínum sem markvörður en ekki síður sínum persónuleika.“Marten mun byrja á því að spila með undir 17 ára liði Bröndby og í samtali við danska miðilinn Tipsbladet segir þjálfari hans hjá HK, Þorleifur Óskarsson, að þarna sé á ferðinni afar spennandi leikmaður.„Hann er góður á öllum sviðum leiksins,“ segir Þorleifur sem býr að mikilli reynslu af þjálfun, meðal annars sem markvarðaþjálfari þar sem hann vann um tíma með Hákoni Valdimarssyni, landsliðsmarkverði.Aðspurður hversu góður Marten geti orðið sparar Þorleifur ekki stóru orðin:„Ég ber hann alltaf saman við Thibaut Courtois (markvörð Real Madrid),“ segir Þorleifur. „Hann getur farið alla leið með réttri þjálfun og í rétta umhverfinu. Sem markvörður þar hann að vera með mikið sjálfstraust og þarf því stuðning jafnvel þó hann geri mistök. Allir gera mistök á einhverjum tímapunkti.“Í augum Þorleifs er Marten framtíðarmarkvörður íslenska landsliðsins.„Eins og staðan er núna eru það Elías Rafn Ólafsson (Midtjylland) og Hákon Rafn Valdimarsson (Brentford) sem berjast um markvarðastöðuna hjá íslenska landsliðinu. Ég tel hins vegar að Marten sé betri með boltann við fæturnar, fótavinna hans er mjög góð og því líta markvörslur hans oft auðveldar út.Með því að bæta á sig meiri vöðvum mun sprengikraftur hans verða meiri. Með réttri þjálfun verður hann í framtíðinni aðalmarkvörður íslenska landsliðsins.“
Danski boltinn Fótbolti HK Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira