Fjárfestar selja í Símanum eftir vonbrigði með nýja afkomuspá
Þótt rekstrarniðurstaðan á síðustu mánuðum ársins 2025 hafi verið ákveðin varnarsigur fyrir Símann eftir brotthvarf Enska boltans þá olli ný afkomuspá fyrir yfirstandandi ár, sem litast meðal annars af kostnaðarþrýstingi frá erlendum birgjum, nokkrum vonbrigðum meðal fjárfesta. Hlutabréfaverð félagsins lækkaði skarpt á markaði í dag.