Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Kjartan Kjartansson skrifar 19. febrúar 2026 10:03 Sænska lögreglan hafði hendur í hári piltsins þegar hann reyndi að myrða annan mann, um mánuði eftir að hann myrti mann á leikvelli í Norrköping í fyrra. Vísir/Getty Saksóknari ætlar að láta rétta yfir fjórtán ára gömlum pilti í Norrköping í Svíþjóð fyrir morð, tilraun til manndráps og fleiri brot. Pilturinn er talinn hafa drepið mann á þrítugsaldri gegn greiðslu og reynt að myrða annan.
Upptaka náðist af því þegar pilturinn skaut 28 ára gamlan mann til bana á leikvelli í Ektorp-hverfi í Norrköping 20. september. Pilturinn skaut manninn í höfuðið, hálsinn og brjóstið. Lögreglan telur um að hreina aftöku hafi verið að ræða og að pilturinn hafi fengið greitt fyrir hana, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Pilturinn náðist síðar þegar hann reyndi að myrða annan 28 ára gamlan mann í líkamsræktarstöð í borginni í október. Jafnaldri piltsins er grunaður um aðild að morðinu í september, þar á meðal um að hafa fengið morðingjann til verksins, skipulagt morðið og haft milligöngu um greiðslu. Þrjú önnur ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára eru grunuð um aðild að morðtilræðinu í líkamsræktarstöðinni. Lögreglan leitar enn þeirra sem fyrirskipuðu morðið og tilræðið. Auk morðsins og manndrápstilraunarinnar er fjórtán ára pilturinn grunaður um vopnalagabrot, íkveikju í fíkniefnabrot. Fer ekki á sakaskrána Ekki er hægt að sækja börn undir fimmtán ára til saka í Svíþjóð. Hins vegar þurfa saksóknarar að rétta yfir þeim ef þau fremja alvarleg afbrot sem meira en fimm ára fangelsi liggur við. Börn geta verið dæmt til greiðslu miskabóta en sakfelling fer ekki á sakaskrá þeirra. Mál ef þessu tagi eru sögð grundvöllur fyrir barnaverndaryfirvöld til þess að grípa inn í. Glæpagengi hafa lengi verið til ófriðs í Svíþjóð. Þau beita meðal annars fyrir sig ungmennum til þess að fremja fyrir sig ýmis konar afbrot, þar á meðal morð. Glæpamennirnir eru sagðir komast í samband við börn og unglinga á netinu og greiða þeim fyrir viðvikin.
Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira