Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Kjartan Kjartansson skrifar 20. febrúar 2026 10:21 Ráðhúsið í Osaka, þriðju stærstu borg Japans. Huldumaður gaf borginni gullstangir til þess að standa undir hluta af kostnaði við endurnýjun hriplekra vatnslagna. AP/Kyodo News Borgarstarfsmenn í Osaka í Japan klóra sér nú í höfðinu eftir að huldumaður gaf borginni 21 kíló af gullstöngum til þess að fjármagna endurbætur á úr sér gegnum vatnslögnum. Gullstangirnar eru hundraða milljóna króna virði.
Hideyuki Yokoyama, borgarstjóri Osaka, greindi fréttamönnum frá gjöfinni í gær en hún barst vatnsveitufyrirtæki hennar í nóvember. Verðmæti gullsins er um 445 milljónir íslenskra króna. „Þetta er svimandi upphæð og ég var orðlaus. Það krefst gríðarlegrar fjárfestingar að skipta út gömlum vatnslögnum og ég get ekki þakkað nægilega fyrir þessa gjöf,“ sagði borgarstjórinn sem hét því að heiðra ósk gefandans. Borgaryfirvöld í þessari þriðju fjölmennustu borg Japans þurfa að skipta út um 259 kílómetrum af vatnslögnum en gjöfin gæti dugað fyrir kostnaðinum við rúmlega tvo kílómetra af lögnum. Áhyggjur af öryggi lagnanna í Osaka komst í hámæli eftir banaslys sem varð í Saitama, norður af Tókýó í fyrra. Þar féll flutningabíll ofan í gríðarlegan vatnspytt sem opnaðist með þeim afleiðingum að ökumaðurinn fórst. Vatnsveitunni í Osaka er kunnugt um 92 vatnsleka undir götum borgarinnar í fyrra.
Japan Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Sjá meira