Fyrsta íshokkígull Bandaríkjanna frá Kraftaverkinu 1980 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. febrúar 2026 19:46 Bandaríkjamenn fagna langþráðu Ólympíugulli í íshokkí. getty/Bruce Bennett Dramatíkin var mikil þegar Bandaríkin urðu Ólympíumeistarar í íshokkí karla í fyrsta sinn í nær hálfa öld.
Bandaríkjamenn unnu frækinn sigur á ógnarsterku liði Sovétmanna í úrslitaleik Vetrarólympíuleikanna 1980. Frá Kraftaverkinu á ísnum, eins og afrek Bandaríkjanna í Lake Placid 1980 er oft kallað, hefur bandaríska liðið ekki unnið gullið í íshokkí á Vetrarólympíuleikum. En Bandaríkjamenn fengu tækifæri til þess að bæta úr því þegar þeir mættu Kanadamönnum í úrslitaleiknum á lokadegi leikanna í Mílanó og Cortina. Jack Hughes var hetja Bandaríkjanna en hann skoraði sigurmark þeirra í framlengingu, 2-1. Markvörður bandaríska liðsins, Connor Hellebuyck, hafði nóg að gera í dag og átti stórleik. Mikið mæddi á honum eftir að Matt Boldy kom Bandaríkjunum yfir. Kanada sótti stíft og Cale Maker fann leiðina framhjá Hellebyuck á 38. mínútu. Hann hélt áfram að verja og úrslit leiksins réðust í framlengingu. Þar reyndist Hughes örlagavaldurinn en hann skoraði sigurmark Bandaríkjanna þegar rúm mínúta var liðin af framlengingunni. Þetta voru tólftu gullverðlaun Bandaríkjanna á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en aðeins Noregur vann fleiri (18). Bandaríkin hafa nú þrisvar sinnum orðið Ólympíumeistarar í íshokkí karla en fyrri tveir titlarnir unnust á bandarískri grundu.
Íshokkí Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Segir Horner vera að trufla Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Minden keypti Erling af ÍBV Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Dagskráin í dag: Belgía tekur á móti stórliði Frakklands Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Zverev náði að tryggja Evrópu sigurinn Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ „Úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð“ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Bayern bjargaði andlitinu gegn neðri deildar liði Andrea í sérflokki í Frakklandi og vann frábæran sigur Sjá meira