„Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Oddur Ævar Gunnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa 23. febrúar 2026 17:22 Áslaug Arna nýtti tækifærið og skellti sér í göngutúr í gærkvöldi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem nú er í námsleyfi í New York segir fárveðrið hafa sett sinn svip á borgina. Ferðabann ökutækja er nú í gildi í borginni og viðvörun gefin út vegna veðurs í fyrsta sinn í nokkur ár. „
Það snjóar og snjóar og búið að snjóa mikið í gærkvöldi þegar mér þótti þetta heldur dramatísk viðbrögð eins og oft hafa verið síðustu vikur við veðrinu hér, en þetta er nú talsvert meiri snjór en fólk hefur séð hér í einhver ár,“ segir Áslaug Arna í samtali við fréttastofu. Hún segir þetta vera eins og mikinn snjódag á Íslandi en stormurinn sem um ræðir sé kannski ekki mikill á íslenskan mælikvarða. „En samt sem áður hefur þetta auðvitað gríðarleg áhrif hér í borginni og það var sett á ferðabann á götum borgarinnar, farartæki í gærkvöldi og það stendur ennþá yfir. Það á að snjóa hér framyfir hádegi þannig þeir einu sem mega nota borgarinnar eru framlínustarfsmenn eða þeir sem eru í nauðsynlegum ferðum.“ Áslaug segist þó ekki hafa haldið sig inni í dag vegna veðursins. Það sé ekki útgöngubann í borginni þó það sé ferðabann fyrirtækja. „Það er ótrúlega fallegt snjóveður ef maður er vel klæddur og vel skóaður og ég nýtti það nú í gærkvöldi að fara út og rölta aðeins um borgina, sem var óvenju hljóðlát en líka alveg ótrúlega falleg eftir að það kom svona mikil neyðarvarnartilkynning í öll tæki manns frá borgarstjóranum hér um þær reglur sem gilda.“ View this post on Instagram A post shared by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) Áslaug segir hljóðið heilt yfir gott í samnemendum sínum úti, tímarnir fari nú fram á Zoom. Reynslumeiri nemendum þyki mikið gert úr snjókomunni.„Okkur hefur fundist mörg viðbrögð hér talsvert dramatísk og einhverjir héðan frá Bandaríkjunum, öðrum fylkjum taka undir það. Aðrir eru bara að sjá snjó í fyrsta skiptið og áttu hér mjög einlæglega skemmtilega daga í byrjun árs sem þeir fengu að upplifa sinn fyrsta snjódag.“ Hún segir venjulegt líf þannig hafa farið úr skorðum. Sjálf hafi hún sem dæmi ætlað að taka þátt í hlaupi í Central Park en því hafi verið slegið á frest. Þá hafi margir þurft að gera ráðstafanir og sumir orðið strandaglópar um stund. „Þetta er nú bara svona íslensk snjókoma, talsvert mikil en hér er vel mokað og það má til hróss segja um borgarstjórnaryfirvöld í New York að það er gert á miklum hraða, moksturinn á götunum. Meira að segja ruslabílarnir eru líka nýttir og eru með plóg, settur plógur framan á þá, þannig það eru ennþá fleiri bílar að moka allar þessar götur í borginni.“
Bandaríkin Veður Íslendingar erlendis Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira