Kjarni máls sem við forðumst að ræða Gunnar Salvarsson skrifar 23. febrúar 2026 18:33 Hvort kysir þú fremur ráðdeild, hagsýni, sparnað, skilvirkni og ábyrga meðferð almannafjár, eða óráðsíu í marglaga, óskilvirkri og rándýrri stjórnsýslu þar sem milljarði eða meira er árlega sóað? Í hnotskurn er þetta valið sem íbúar höfuðborgarsvæðisins stæðu frammi fyrir, ef þeim gæfist kostur á að segja álit sitt á sameiningu sveitarfélaganna. Umræðan er ekki ný. Hún hefur komið upp með reglulegu millibili síðustu áratugi: á tíunda áratug síðustu aldar, aftur í kjölfar bankahrunsins og síðast í tengslum við samgöngusáttmálann og Borgarlínu. Í hvert sinn fjaraði umræðan út áður en fyrsta skrefið var tekið: að láta framkvæma heildstæða og óháða hagkvæmnisathugun á kostnaði og ávinningi. Ástæðan virðist einföld. Kerfið sjálft og stjórnmálaflokkarnir hafa hvorki vilja né kjark til að láta reikna út hvað þessi marglaga stjórnsýsla kostar í raun. Það er umhugsunarvert. Á höfuðborgarsvæðinu starfa í dag sjö sveitarfélög með samtals 79 kjörna fulltrúa. Reykjavík er með 23 borgarfulltrúa, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellsbær 11 hvert, Seltjarnarnes 7 og Kjósarhreppur 5. Þetta eru sjö aðskildar stjórnsýslueiningar sem taka ákvarðanir um skipulag, skólamál, félagsþjónustu og innviði á einu samfelldu atvinnu- og búsetusvæði með tæplega 240 þúsund íbúa. Til samanburðar má líta til dönsku borgarinnar Århus. Þar búa um 370 þúsund manns sem kjósa sér 31 borgarfulltrúa til setu í einni sameinaðri sveitarstjórn. Verkefnin eru ekki færri en hér, en stjórnsýslan er á einni hendi og ábyrgðin skýr. Mætti fækka um tæplega fimmtíu kjörna fulltrúa Ef höfuðborgarsvæðið starfaði sem ein heild með 31 kjörnum fulltrúa í stað 79 næmi fækkunin 48 fulltrúum. Gróf og varfærin áætlun, byggð á opinberum launatölum, bendir til þess að heildarkostnaður á hvern kjörinn fulltrúa sé að jafnaði 8–12 milljónir króna á ári. Með 10 milljónir sem viðmið jafngildir slík fækkun um 480 milljónum króna árlega. Þegar fundargjöld og nefndarálag eru tekin með má ætla að beinn sparnaður vegna fækkunar kjörinna fulltrúa nálgist 500–700 milljónir króna á ári. Þar við bætast laun eins borgarstjóra og sex bæjarstjóra. Miðað við að heildarkostnaður við hvert slíkt embætti sé 30–40 milljónir króna á ári gætu breytingar á því stigi sparað 150–200 milljónir króna til viðbótar. Samanlagt er því ekki óraunhæft að beinn sparnaður á efsta stjórnsýslustigi næmi allt að 900 milljónum króna árlega. Ef jafnframt næðist fram hófleg stærðarhagkvæmni í yfirstjórn, stoðþjónustu, innkaupum og upplýsingakerfum gæti heildarávinningurinn farið langt yfir milljarð króna á ári. Starfa þegar sem ein heild Merkilegt nokk hafa sveitarfélögin sjö þegar viðurkennt nauðsyn þess að starfa sem ein heild. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, eru samstarfsvettvangur sveitarfélaganna og sinna meðal annars svæðisskipulagi og samhæfingu í samgöngumálum. Samtökin koma fram gagnvart ríkinu í stórum innviðaverkefnum á borð við samgöngusáttmálann. En þau eru ekki stjórnsýslueining. Þau hafa hvorki sjálfstætt umboð frá íbúum né framkvæmdavald yfir þjónustu. Höfuðborgarsvæðið starfar því í reynd sem ein heild. Stjórnsýslan er hins vegar sjöföld. Og talandi um kjarnann. Mér verður hugsað til orða Halldórs Laxness í Innansveitarkróniku þegar hann skrifaði að Íslendingar leystu vandræði sín stundum með því að „stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ Hér er kjarni máls. Sameining gæti styrkt fjárhag sveitarfélaganna um hundruð milljóna árlega. Það fjármagn mætti nota í aðkallandi verkefni í þágu íbúanna, verkefni sem í dag eru afgreidd með þeim rökum að fjármagn skorti. Mótrökin eru kunnugleg og þau þarf að ræða af yfirvegun. Ótti við að Reykjavík „gleypi“ önnur sveitarfélög stenst þó ekki skoðun. Sameinað höfuðborgarsvæði yrði um 250 þúsund íbúa heild, ekki stækkuð Reykjavík, heldur ný heild. Nýr kjarni. Svo má auðvitað velta því upp hvort nýtt ráðhús yrði fært nær miðju höfuðborgarsvæðisins, í Kópavog, og ráðhúsið við Tjörnina gæti þá verið tekið undir hjúkrunarheimili til að slá margar flugur í einu höggi! Þetta er smá grín. En málið sjálft er mikið alvörumál. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga væri eðlilegt að taka þetta til umræðu. Það þarf einfaldlega að láta reyna á hvort við viljum ræða kjarna máls, eða halda áfram að sitja þögul með skelfingarsvip á andlitinu. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar