Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. febrúar 2026 06:47 Einar Bárðarson hefur sent erindi á borgarstjóra og bæjarfulltrúa vegna málsins. Vísir/Anton Brink Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins.
Vísir ræddi í gær við Hjalta Vignisson eiganda hamborgarastaðarins 2guys við Hlemm. Starfsmenn þar hafa ítrekað fengið stöðumælasektir þegar þeir hafa affermt vörur, jafnvel þó þeir hafi einungis stoppað örstutt fyrir utan veitingastað sinn. Hamborgarastaðurinn er beint á móti Hlemmi og er svæðið nú einungis fyrir gangandi vegfarendur og er vörulosun heimil á milli 07:00 og 11:00. Sagðist Hjalti hafa mætt skilningsleysi á vegum borgarinnar vegna málsins, losunartíminn henti ekki. Sagði borgin í svörum til Vísis að reglurnar væru sambærilegar og í nágrannalöndum Íslands. Til að mynda Strikinu í Kaupmannahöfn, göngugötunni í Árósum, göngugötum og torgum í Osló og öðrum miðborgum á Norðurlöndunum sé vöruafhending einnig almennt heimiluð til kl. 11 og sums staðar einungis til 9 á ákveðnum dögum. Undantekningar fyrir „örstopp“ Í tilkynningu til Vísis sem jafnframt var send á borgarstjóra og borgarfulltrúa spyr Einar Bárðarson framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði meðal annars hvort kominn sé tími á friðarviðræður í Reykjavík? Hann segir þar meðal annars að endalausri aðför Bílastæðasjóðs gegn litlum fyrirtækjum í borginni verði að linna. „Við skiljum öll að vöruafhendingar á stórum bílum verður að stilla á ákveðna tíma og það fyrirkomulag er nánast í öllum borgum þar sem einhverju er varið í en hins vegar eru flestar þessar borgir með undantekningar fyrir minni afhendingar í örstoppum,“ segir í tilkynningunni. Þar vísar Einar meðal annars til danskrar reglugerðar. „Í frétt í dag segir fulltrúi borgarinnar að afhendingar séu bara á ákveðnum tímum í öllum borgum Norðurlandanna og bendir á Kaupmannahöfn máli sínu til stuðnings. Það er bara hálfur sannleikurinn því þar eru undanþágur fyrir smásendingar en ekki veiðileyfi á þær fyrir Bílastæðasjóð Kaupmannahafnar.“ Einar ræddi stöðuna í veitingageiranum í kvöldfréttum Sýnar í október síðastliðnum. Sagði hann veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum. Kallar eftir breytingum Einar segist í samtali við Vísi þekkja vel til í málaflokknum þar sem hann hafi eitt sinn verið starfsmaður Höfuðborgastofu í tæp þrjú ár frá 2012. Hann segir kominn tíma á samtal. „Það er alveg eðlilegt að flutningabílar sem afhenda vörur á brettum hafi bara ákveðinn tíma, en til þess að leysa tilfallandi vandamál, sinna biluðum búnaði, fara með minni sendingar þá verður að vera hægt að sendast með þær á venjulegum bílum, þetta á ekki að vera svona flókið,“ segir Einar. Hann bendir á að í miðborginni séu þetta mest allt minni, í mesta lagi meðalstór fyrirtæki. Sektir upp á tíu þúsund krónur í hvert sinn séu fljótar að safnast upp. Hann bendir á að rekstraraðilar 2guys hafi gert sitt til að trekkja fólk að Hlemmi, svæði sem borgin hafi og sé raunar enn að gera upp fyrir gangandi vegfarendur. „Reykjavíkurborg hefur eytt hundruðum milljónum í Hlemm og nýtir hægri höndina til að gera svæðið líflegt og svo kemur vinstri höndin og reynir að kæfa hana með svona umgengnisreglum. Þarna er bara ekkert mál að leysa þetta.“ Einar segist lýsa eftir stjórnmálamönnum vegna málsins. „Stjórnmálamenn, sérstaklega í Reykjavík hafa stillt opinberum starfsmönnum upp í skotlínuna. Þeir koma alveg af fjöllum þegar þarf að moka snjó, þegar þarf að salta, þetta er allt einhverjum starfsmönnum að kenna sem búa við takmarkað budget þannig þeir ráða ekki við stöðuna, í stað þess að einhverjir kjarkaðir yfirmenn mæti til leik og segi: Sorry guys, við lögum þetta.“
Veitingastaðir Reykjavík Stjórnsýsla Danmörk Bílastæði Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Sjá meira