Bílastæði „
1 2 3 4 5 6 … 7 ›
„Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ Formaður neytendasamtakanna segir stórskrýtið hvernig stjórnvöld hafa tekið á málum er varða bílastæðagjöld. Leiða megi líkur að því að fyrirtæki sem rukki fyrir þriðja aðila séu ekki með leyfi til þess og segir ekki ganga að hér á landi sé stunduð starfsemi sem sniðgangi lög. Innlent 17.8.2025 17:16
Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Þau sjö ár sem ég sat í borgarstjórn gagnrýndi ég þann frumskóg sem bílastæðagjöld eru í Reykjavík. Ég lagði fram fjölmargar bókanir og tók málið oft upp á fundum. Í dag er staðan þannig að þeir sem eru sektaðir er ekki lengur gert viðvart um það með sektarmiða á framrúður bíla og fjölmörg fyrirtæki hafa fengið leyfi frá borginni til að sinna gjaldtöku. Skoðun 13.8.2025 08:03
Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Stjórnendur N1 Hringbraut og Borgartúni hafa komið upp gjaldskyldu fyrir þá sem leggja við stöðina lengur en 45 mínútur. Kona sem var rukkuð um upp á 5.750 krónur í vangreiðlsugjald eftir að hafa stoppað og fengið sér að borða við Hringbraut gagnrýnir fyrirkomulag gjaldtökunnar. Rekstrarstjóri N1 segir gjaldskylduna neyðarúrræði og gjaldtökuna ekki til þess að græða. Neytendur 12.8.2025 18:20
Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Nýverið fékk ég símtal frá fjölmiðli þar sem vísað var í grein þar sem stór orð voru höfð um miklar raunir sem væru runnar undan rifjum illkvittinna einkaaðila. Einkaaðila sem væru í því að bregða fæti fyrir fólk víða um land í þeirri villta vesturs stemmningu sem ríkti í þessari atvinnugrein. Skoðun 12.8.2025 13:45
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir gullgrafaræði skýra þá þróun sem hefur verið í bílastæðamálum og segir hana græðgisvæðingu sem hafi fengið að ganga allt of langt. Hann skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stigið fastar niður nú þegar. Viðskipti innlent 12.8.2025 12:01
Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Ekki líður dagur án þess að Neytendastofu berist kvartanir vegna bílastæðamála, þrátt fyrir að hafa sektað nokkur fyrirtæki og birt ákvarðanir. Forstjórinn segir landslagið gjörbreytt frá því sem var og útlit sé fyrir að vandinn sé að aukast. Neytendur 11.8.2025 20:41
Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og ráðherra neytendamála, segist ítrekað hafa lent í því að fá rukkun inn á heimabanka frá bílastæðafyrirtækjum sem hún viti ekki hvernig sé tilkomin, líkt og fjölmargir landsmenn. Hanna greindi frá þessu í Hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 11.8.2025 13:24
Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Fjölskylda í Grafarvogi fékk rukkun upp á tæplega sex þúsund krónur eftir að hafa lagt á bílastæði við Kirkjufell á Snæfellsnesi. Ráðherra segir fjölskylduna ekki hafa áttað sig á því að gjaldskylda væri á bílastæðinu. Neytendur 11.8.2025 11:06
Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Blóðbankinn mun flytjast í Kringluna í haust, en framkvæmdir og skortur á bílastæðum við núverandi húsnæði eru tekin að aftra móttöku blóðgjafa, að sögn yfirlæknis. Innlent 6.8.2025 12:05
Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör Viðskiptavinir bílastæðafyrirtækisins Lagningar hafa margir fengið kröfu í pósthólfið sitt frá Isavia þrátt fyrir að hafa þegar greitt fyrir bílastæði við Keflavíkurflugvöll. Einhverjir segjast hvorki hafa fengið endurgreitt né svar frá fyrirtækinu svo vikum skiptir. Eigandi Lagningar segir vandamálið ekki hjá fyrirtækinu og að unnið sé að endurgreiðslum. Neytendur 26.7.2025 17:21
Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Deildarstjóri hjá borginni segir unnið að lausn sem eigi að koma í veg fyrir að hreyfihamlaðir séu sektaðir fyrir að leggja í gjaldskyld stæði borgarinnar. Auðvelt sé að fá ranglega veittar sektir felldar niður. Fréttir 25.7.2025 23:13
Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Fólk með fötlun lendir ítrekað í því að fá sektir fyrir að greiða ekki í bílastæði, þrátt fyrir að það þurfi ekki að borga. Formaður aðgengishóps segir atvik sem þessi ólíðandi. Innlent 24.7.2025 21:54
Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Ferðaþjónustuaðili segir aðstæður á gossvæðinu á Reykjanesi vera með besta móti, svo minni á fyrsta eldgosið við Fagradalsfjall frá árinu 2021. Auðvelt sé að fara með ferðamenn að gosinu en bílastæði séu sneisafull og líklegt að bregðast þurfi við. Innlent 21.7.2025 12:00
„Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Nýr framkvæmdastjóri bílastæðafyrirtækisins Parka segir fyrirtækið ekki í stríði við neytendur. Ábendingar í úrskurði Neytendastofu í síðasta mánuði hafi verið mikilvægar og starfsmenn séu allir af vilja gerðir til að gera þjónustu Parka sem þægilegasta fyrir neytendur. Viðskipti innlent 18.7.2025 08:05
Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendastofa hefur sektað Isavia um hálfa milljón króna vegna brota á lögum um upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra svæða á Keflavíkurflugvelli voru ekki í samræmi við lög. Neytendur 17.7.2025 10:47
„Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Formaður foreldrafélags Laugarnesskóla segir það hálfgerðan yfirgang af hendi forsvarsmanna líkamsræktarstöðvarinnar World Class að krefjast þess að hagsmunir rekstrarins gangi fram fyrir heilsu og menntun 450 grunnskólabarna. Innlent 11.7.2025 12:18
Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Eigendur líkamsræktarstöðvarinnar World Class mótmæla breytingum á aðalskipulagi sem þau segja brjóti gegn óbeinum eignarétti þeirra á bílastæðum í Laugardalnum. World Class hefur fengið afnot af bílastæðum gjaldfrjálst í rúm tuttugu ár en þar á að rísa skólaþorp. Forsvarsmenn stöðvarinnar krefjast bóta verði ekki fallið frá áformunum. Innlent 11.7.2025 07:54
Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Kona segir farir sínar ekki sléttar af bílastæðafyrirtækinu Parka, sem rukkaði hana 48 þúsund krónur á dögunum fyrir bílastæði. Sonur hennar hafði þá skroppið inn í búð í miðborginni, gleymt að skrá sig úr bílastæðinu að búðarferð lokinni og uppgötvað mistökin tveimur dögum síðar. Neytendur 10.7.2025 22:13
„Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Samgöngustjóri Reykjavíkur segir engan vafa liggja á að fyrirkomulag bílastæðasjóðs um álagningu sekta án sektarmiða sé löglegt. Hún segist ekki hafa orðið var við óánægju með fyrirkomulagið. Innlent 10.7.2025 14:02
Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Formaður Neytendasamtakanna segir svokallaðar „ósýnilegar stöðumælasektir“ ekki eiga að líðast hér á landi. Hann kallar eftir því að stjórnvöld feti í fótspor Dana sem hafa bannað þannig sektir. Neytendur 8.7.2025 22:28
Bærinn sagði nei við fyrsta kosti lögreglu Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar hefur hafnað beiðni lögreglustjórans á Vestfjörðum um tímabundin einkastæði í Hafnarstræti fyrir lögregluna sem neyddist til að flytja starfstöð sína vegna myglu. Forgangsakstur lögreglu fari illa saman við götulokun fyrir gangandi vegfarendur. Innlent 2.7.2025 14:01
Nemendur greiði tuttugu þúsund krónum meira í Strætó en starfsfólk Tuttugu þúsund króna munur er á niðurgreiddu árskorti í Strætó fyrir starfsfólk Háskóla Íslands og árskorti nemenda, starfsfólkinu í hag. Forsvarsmenn hagsmunasamtaka nemenda HÍ eru afar óánægðir með ákvörðunina. Innlent 30.6.2025 22:18
Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Gjaldtaka í bílastæði við Háskóla Íslands hefst þann 18. ágúst eða við upphaf haustmisseris. Gjaldskylda verður frá 8 til 16 á virkum dögum. Mánaðaráskrift hljóðar upp á 1500 krónur en tímagjald á öllum bílastæðum verður 230 krónur. Gjaldtaka átti upphaflega að hefjast í fyrrahaust. Innlent 27.6.2025 10:08
„Það er svo mikið rugl í gangi“ Neytendasamtökin biðla til stjórnvalda að koma skikki á bílastæðamál hér á landi sem séu í algjörum ólestri. Fólk er hvatt til að krefjast endurgreiðslu á ólögmætum gjöldum sem bílastæðafyrirtæki leggja á. Neytendur 14.6.2025 21:23
Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Neytendastofa hefur enn til skoðunar upplýsingagjöf bílastæðafyrirtækja um gjaldtöku. Neytendastofa sektaði í gær fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna. Neytendur 11.6.2025 07:58
Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki sem innheimta gjöld fyrir notkun bílastæða. Upplýsingagjöf og viðskiptahættir fyrirtækjanna voru ekki talin í samræmi við lög og hæsta sektin nam einni milljón króna. Neytendur 10.6.2025 15:08
Banna lagningu bíla í beygjum í Álakvísl Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt bann við lagningu ökutækja í beygjum í Álakvísl í Ártúnsholti milli Álakvíslar 16 og 38 og milli Álakvíslar 15 og 136. Upphaflega var til skoðunar að banna lagningu í allri götunni en íbúar mótmæltu. Innlent 5.6.2025 10:44
Inga endurvekur 25 metra regluna Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur gert breytingar á byggingarreglugerð sem fela í sér að bílastæði fyrir hreyfihamlaða megi ekki vera meira en 25 metrum frá aðalinngangi bygginga. Ákvæði þess efnis var fellt út árið 2016. Innlent 4.6.2025 14:12
Bílastæðið rifið upp með rótum Á bílastæðinu við Laugardalsvöll er nú unnið að því að rífa upp malbik svo hægt sé að leggja grunn að nýju skólaþorpi. Áætlað er að tíu kennslustofur fyrir börn í Laugarnesskóla verði reiðubúnar til notkunar í haust. Innlent 4.6.2025 13:53
Bílastæðin höluðu inn 78 milljónum en kostuðu litlu minna Tekjur Isavia af innheimtu bílastæðagjalda við innanlandsflugvelli námu 78 milljónum króna í fyrra og kostnaður af henni nam 74 milljónum. Inni í þeirri tölu er þó stofnkostnaður og Isavia segir innleiðingu gjaldtökunnar heilt á litið hafa gengið vel. Innlent 3.6.2025 21:03