Halló boltafjörðurinn Hafnarfjörður Ívar Pétursson skrifar 25. febrúar 2026 07:02 Nú hefur Hafnarfjörður kynnt með stolti að til standi að byggja nýjan golfvöll í Hafnarfirði, sem eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir þá fjöldamörgu iðkendur sem stunda þá íþrótt. Hins vegar er tölfræðin fyrir þá íþrótt frekar sláandi fyrir okkur, sem berjumst fyrir öðrum íþróttum, en hvergi í heiminum, já öllum heiminum, eru fleiri golfvellir miðað við höfðatölu en á Íslandi eða sirka 5300 manns á hvern völl. Til samanburðar þá eru einungis þrjár skautahallir á landinu sem sinna þá 127.666 manns hver. Tími til kominn að byggja fleiri skautahallir á Íslandi – Hafnarfjörður í lykilstöðu Á Íslandi hefur íþróttamenning blómstrað í gegnum áratugina. Við erum stolt af afrekum í fótbolta, handbolta og körfubolta og á sama tíma byggt upp glæsilega aðstöðu fyrir þessar greinar. En á meðan eru íþróttir á ís, eins og íshokkí, listskautar, krulla og skautahlaup, að kafna úr aðstöðuleysi. Það er löngu tímabært að bæta úr og Hafnarfjörður er í kjörstöðu til að stíga fram og verða leiðandi í þeirri uppbyggingu. Skorturinn er alvarlegur Í dag eru einungis þrjár skautahallir á Íslandi, tvær í Reykjavík og ein á Akureyri. Þessar hallir eru uppbókaðar frá morgni til kvölds. Öll aðstaða er einnig sprungin og börn neyðast jafnvel til að klæða sig í æfingarbúnað á göngum og áhorfendapöllum vegna plássleysis í klefum vegna fjölda iðkenda. Ekki var hægt að finna tíma í ár til að allir sem vildu kæmust að með æfingar og þurfti til dæmis að draga nýstofnað lið Skautafélags Hafnarfjarðar úr keppni á Íslandsmeistara móti karla vegna skorts á ístíma til æfinga. Skautafélag Reykjavíkur, sem þjónar yfir 800 iðkendum, fær aðeins um 35 raunhæfar æfingaklukkustundir á viku til að sinna bæði listskautum og íshokkí. Þar eru biðlistar til að komast að í listskauta og íshokkíiðkendur hafa þrefaldast á fáum árum. Samanburðurinn við önnur lönd talar sínu máli: Finnland: 293 innanhús svell – 5,3 innanhús svell á hverja 100 þúsund íbúa. Svíþjóð: 374 innanhús svell – 3,55 innanhús svell á hverja 100 þúsund íbúa. Ísland: Aðeins 3 vellir – 0,77 innanhús svell á hverja 100 þúsund íbúa. Ef við myndum fylgja fordæmi nágrannaþjóða okkar ættum við að hafa 14–20 skautahallir en ekki aðeins þrjár. Hafnarfjörður sem leiðandi afl Hafnarfjörður hefur sterka íþróttamenningu og öflugt samfélag. Bærinn gæti orðið lykiláfangastaður fyrir ís-íþróttir á höfuðborgarsvæðinu. Ný skautahöll myndi: Létta álagi af Laugardal og Egilshöll. Gefa börnum og ungmennum í Hafnarfirði, á Suðurnesjum og nágrannasveitarfélögum aðgang að aðstöðu án þess að sækja hana alla leið til Reykjavíkur. Tryggja fjölbreyttari íþróttaiðkun í Hafnarfirði og styrkja bæinn sem íþróttabæ. Skapa ný tækifæri fyrir mótahald, atvinnusköpun og ferðaþjónustu. Af hverju er þetta svo mikilvægt? Aðgengi og sýnileiki íþrótta er mjög mikilvægur til að stuðla að áframhaldandi vexti þeirrar íþróttar, sem sýnir sig vel í t.d. golfi og fótbolta. Mikil fjölgun í þeim íþróttum er háð því að hægt sé að taka við nýjum iðkendum og á það við um allar íþróttir. Þetta er ekki eingöngu spurning um íshokkí eða listskauta. Með góðri framtíðarhugsun og hönnun væru möguleikarnir margir. Skautahallir eru fjölnota mannvirki sem hægt væri að hanna með öðrum íþróttum í huga. Þar mætti hýsa aðstöðu fyrir skotfimi, bogfimi, klifur, badminton og keilu sem dæmi. Þannig nýtist fjárfestingin fleirum en aðeins ís-íþróttum og bætir heildaraðstöðu fyrir fjölbreytta jaðaríþróttaiðkun. Tími til aðgerða: Þörfin er ekki lengur álitamál heldur staðreynd. Íþróttahreyfingin hefur kallað eftir úrbótum árum saman og sveitarfélögin þurfa að taka frumkvæði. Hafnarfjörður hefur alla burði til að stíga skrefið og setja á laggirnar nýja skautahöll, ekki aðeins fyrir íbúa bæjarins heldur fyrir allt höfuðborgarsvæðið og landið í heild. Það er kominn tími til að tryggja að ís-íþróttir fái þá aðstöðu sem þær eiga skilið. Með byggingu nýrrar skautahallar í Hafnarfirði yrði stigið stórt framfaraskref fyrir íþróttamenningu, samfélag og heilsueflingu þjóðarinnar. Allir með Nú er tækifærið fyrir öll bæjarfélög á Íslandi að grípa gæsina og verða fyrst til að ráðast í að byggja upp skautahöll og koma starfinu á legg, eftirspurnin er svo sannarlega til staðar en framboðið ekki. Án þess að hafa fulla vissu um það, er ég sannfærður um að öll þrjú félögin á landinu, SR, SA og Fjölnir myndu glöð gefa ráð, hugmyndir og athugasemdir varðandi lærdóm sem búið er að læra fyrir þá sem þess myndu óska, til að tryggja að hönnun og framkvæmd yrði sem best. Höfundur er ritari Foreldrafélags Íshokkí deildar Skautafélags Reykjavíkur (FRÍS) og faðir þriggja barna úr Hafnarfirði sem stunda íshokkí með SR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íshokkí Hafnarfjörður Börn og uppeldi Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Sjá meira
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason Skoðun