Er veggurinn nóg fyrir þig? Óðinn Freyr Baldursson skrifar 25. febrúar 2026 09:16 Í bókinni “Ríkið” lýsir Platon mynd sem hefur nú lifað í rúm tvö þúsund ár. Menn sitja hlekkjaðir inni í helli og horfa á vegg. Þeir hafa verið þar síðan þeir fæddust. Fyrir aftan þá logar eldur sem lýsir upp vegginn fyrir framan þá og varpar skuggum á hann. Skuggarnir eru allt sem þeir þekkja. Einn þeirra losnar óvænt. Hann snýr sér við og sér eldinn. Síðan er hann leiddur út úr hellinum. Ljósið frá sólinni særir augun til að byrja með. Hann sér ekkert, svo óljós form, og loks heiminn sjálfan í birtu sólarinnar. Þá skilur hann að það sem hann taldi vera veruleikann, voru einungis skuggar. Það sem á það til að gleymast í þessari sögu er að frelsið snýst ekki um að yfirgefa hellinn að eilífu. Maður getur alltaf snúið aftur inn, en þá vitandi að veggurinn er ekki allur heimurinn. Þessi mynd á erindi langt út fyrir heimspekisöguna. Hún snýst um samband okkar við þekkingu. Við lifum öll innan ákveðinna forsendna, venja, og frásagna sem móta hvernig við skiljum og skynjum heiminn í kring um okkur. Það er eðlilegt. En spurningin er hvort við þorum að snúa okkur frá veggnum þegar tækifæri gefst til. Þessi grein fjallar samt ekki um heimspeki eða sögu. Hún snýst um umræðuna í dag og þá sérstaklega umræðuna um að opna samningaviðræður á ný við Evrópusambandið. Í þeirri umræðu hefur oft verið talað eins og málið sé einfaldlega útkljáð. Sumir telja ekki ástæðu til að ræða það frekar en aðrir vilja ganga lengra. En á milli þessara póla liggur grundvallarspurningin sem er heimspekileg áður en hún er pólitísk; viljum við sjá hvað raunverulega liggur á borðinu? Við það að opna viðræður erum við ekki að samþykkja inngöngu. Það er ekki skuldbinding um niðurstöðu. Það er ferli sem leiðir í ljós hvaða samningur býðst, hvaða skilmálar standa til boða og hvaða raunveruleiki blasir við í dag… ekki fyrir áratug. Þjóð sem sér heildarmyndina getur hafnað henni með sterkari rökum. Hún getur líka samþykkt hana af meiri sannfæringu. Í báðum tilfellum er ákvörðun tekin í ljósi… ekki skugga. Ferðin út úr hellinum er óþægileg að sögn Platons. Ljósið særir, sá sem snýr aftur er jafnvel tortryggður. Þekking raskar ró. Hún krefst þess að við viðurkennum að það sem við töldum sjálfsagt gæti þurft að endurskoða. Það er ekki veikleiki heldur eðli frjálsrar hugsunar. Ef við erum sannfærð um að núverandi afstaða sé rétt, ætti hún ekki þá að þola endurskoðun og að vera prófuð í birtu í stað myrkurs? Ef hún stenst þá stendur hún sterkari. Ef hún breytist, þá var breytingin byggð á upplýsingum en ekki ótta. Platon var ekki að skrifa um Evrópusambandið. Hann var að skrifa um hugrekki til að endurskoða sína eigin trú og sinn eigin hugsunarhátt. Spurningin sem stendur er því ekki fyrst og fremst hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið heldur hvort við viljum taka ákvörðunina að sjá meira en bara hellinn. Eða hvort við séum sátt með vegginn... Höfundur er í félagastjórn Uppreisnar (ungliðahreyfingar Viðreisnar). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar