Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur Valur Páll Eiríksson skrifar 28. febrúar 2026 18:38 Andrea Jacobsen var markahæst Íslendinganna í dag. Sven Hoppe/picture alliance via Getty Images Íslendingalið Blomberg-Lippe vann dramatískan eins marks sigur á liði Flames í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigurmarkið kom á lokasekúndunni.
Blomberg-Lippe var með undirtökin lengst af leik dagsins en hann var þó jafn og erfitt reyndist að slíta heimakonur í Flames frá sér. Mest varð munurinn fjögur mörk snemma í síðari hálfleik en heimakonur jöfnuðu og komust svo yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar tíu mínútur voru eftir, í stöðunni 24-23. Blomberg-Lippe svaraði. Andrea Jacobsen kom liðinu 27-26 yfir þegar þrjár mínútur voru eftir og mark Díönu Daggar Magnúsdóttur í kjölfarið tvöfaldaði forystuna, 28-26. Flames minnkuðu muninn í eitt mark þegar tvær mínútur voru eftir og spennan mikil. Ninu Engel tókst að jafna af vítalínunni þegar 20 sekúndur lifðu leiks. Blomberg stillti upp í lokasókn og á ótrúlegan hátt tókst að vinna sigur þökk sé flautumarki Nieke Kuhne. Andrea Jacobsen skoraði þrjú og lagði upp þrjú, Díana Dögg skoraði tvö og lagði upp þrjú og þá var Elín Rósa Magnúsdóttir með eitt mark og eina stoðsendingu. Sigurinn er afar mikilvægur fyrir Blomberg-Lippe í toppbaráttunni. Liðið er í öðru sæti, þremur stigum frá toppliði Dortmund, en á leik inni og getur því minnkað bilið í eitt stig.
Þýski handboltinn Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira