Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Kristján Már Unnarsson skrifar 1. mars 2026 07:47 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kemur í opinbera heimsókn til Indlands árið 2000 á Boeing 747-400 risaþotu Air Atlanta. Lent var á flugvellinum í Nýju-Delí. KMU Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims.
Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ er fjallað um júmbó-þotuna í höndum Íslendinga. Það þótti risastökk í íslenskri flugsögu og fyrir Air Atlanta þegar fyrsta 747-þotan var skráð á Íslandi en hún lenti á Keflavíkurflugvelli vorið 1993. Hún fékk einkennissstafina TF-ABK og nafnið Agnar Kofoed Hansen til heiðurs helsta frumkvöðli íslenskra flugmála. Þóra Guðmundsdóttir afhenti Eyjólfi Haukssyni flugstjóra blómvönd við komu fyrstu Boeing 747-þotu Air Atlanta til Íslands vorið 1993.Stöð 2/Magnús B. Magnússon Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda Atlanta, rifjar upp hvernig henni leið að taka 747-þotu inn í rekstur Air Atlanta. „Ég var með stóran kökk í hálsinum. Og ég hugsaði bara fyrir sjálfa mig: Hvað ertu búin að koma þér út í! Svo leið ekki nema mánuður eða svo. Þá vantaði þá vél númer tvö,“ segir Þóra. „Svo rétt á eftir þrjár,“ segir Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi eiginmaður Þóru og hinn stofnandi félagsins. Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Air Atlanta, á Flugsafni Íslands á Akureyri. Fyrir aftan er hreyfill af Boeing 747.Egill Aðalsteinsson „Þetta byggði til að byrja með á pílagrímaflutningum,“ segir Arngrímur. Þuríður Sigurðardóttir söngkona var í hópi flugfreyjanna í pílagrímafluginu hjá Air Atlanta. „Þetta er stórkostlegt tæki. Og það er alltaf jafn heillandi að vera á flugvelli og horfa á þetta ferlíki taka sig á loft. Það er engu líkt,“ segir Þuríður. Þuríður Sigurðardóttir söngkona starfaði sem yfirflugfreyja um borð í 747-þotum Atlanta.Egill Aðalsteinsson En það var jafnframt farið að nýta júmbó-þotur Atlanta til að bjóða Íslendingum ódýrt flug til útlanda á vegum ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða, þar á meðal til Bahama-eyja. Þóra lýsir einnig ferðum með forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, í opinberar heimsóknir, eins og til Indlands. Á flugvellinum í Nýju-Delí árið 2000. Júmbó-þotan fyrir aftan. „Þetta var svolítið grand.“KMU Forsetinn og sendinefnd hans tóku þó aðeins lítinn hluta sætanna. Áskrifendum Stöðvar 2 var boðið að kaupa stærsta hlutann. Það þótti hins vegar tilkomumikið að sjá forseta Íslands mæta í opinbera heimsókn til Indlands á júmbó-þotu, rétt eins og hér væri Bandaríkjaforseti á ferð. „Það var svolítið grand,“ segir Þóra í þættinum en hér má sjá sjö mínútna kafla. Þátturinn um júmbó-þotuna er sá sextándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð þáttinn í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Air Atlanta Fréttir af flugi Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson Tengdar fréttir Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00 „Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42 Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Þau Arngrímur og Þóra voru lengi frægustu flughjón Íslands. Svo skildu þau, eftir að hafa byggt upp flugfélagið Air Atlanta úr engu og gert það að stórveldi. 19. ágúst 2025 12:00 Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. 3. október 2024 21:31 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira
Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Þegar Air Atlanta tók að sér viðamikið pílagrímaflug fyrir Saudia-flugfélagið árið 1993 lét Þóra Guðmundsdóttir, annar stofnanda félagsins, hanna og sauma sérstaka flugfreyjabúninga. Í þættinum Flugþjóðin lýsa fyrrverandi og núverandi starfsmenn íslenskra flugfélaga því hvernig var að starfa undir vökulum augum trúarlögreglu í Sádí-Arabíu. 8. febrúar 2026 08:00
„Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42
Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Þau Arngrímur og Þóra voru lengi frægustu flughjón Íslands. Svo skildu þau, eftir að hafa byggt upp flugfélagið Air Atlanta úr engu og gert það að stórveldi. 19. ágúst 2025 12:00
Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. 3. október 2024 21:31