Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Sindri Sverrisson skrifar 1. mars 2026 12:57 Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson hafa búið í Sádi-Arabíu frá árinu 2024. Instagram/@sarabjork90 Knattspyrnuparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson býr með syninum Ragnari Frank í Sádi-Arabíu, nærri stríðsástandinu sem nú geisar í Mið-Austurlöndum.
Sara sendi frá sér stutta uppfærslu á Instagram í dag og lét vita af því að fjölskyldan væri örugg, þó að átökin séu nú ansi nærri heimili þeirra. „Við erum örugg í augnablikinu, jafnvel þó að allt sé mjög nálægt heimili okkar hér í Sádi. En staðan er auðvitað mjög óhugnanleg og ekki eitthvað sem við erum vön. Vonandi færist þetta ekki í aukana,“ skrifaði Sara og þakkaði fyrir öll skilaboðin sem henni höfðu borist. Ekki náðist í Söru við gerð fréttarinnar. Sara Björk og Árni eiga soninn Ragnar Frank sem er fjögurra ára gamall.Instagram/@sarabjork90 Íranir hafa heitið hefndum eftir að æðsti leiðtogi landsins var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna á ríkið í gær. Þeir hafa svarað árásunum með því að senda eldflaugar á Ísrael og á herstöðvar Bandaríkjanna í nágrannagríkjunum Katar, Barein, Kúveit, Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum, ríkjum sem Sádi-Arabía á landamæri að. Sara og Árni hafa bæði spilað fótbolta í Sádi-Arabíu síðustu misseri en hafa nýverið verið orðuð við íslenska boltann og sögð á heimleið í sumar. Sara er með liði Al Qadsdiah í 4. sæti sádiarabísku úrvalsdeildarinnar en liðið spilaði síðast 19. febrúar, í 1-1 jafntefli við Neom. Næsti leikur liðsins er áætlaður 27. mars, gegn Al Ittihad. Árni er leikmaður Al Taraji í sádiarabísku C-deildinni, þar sem næsti leikur er 7. mars við Al Washm.
Sádi-Arabía Sádiarabíski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira