Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Freyja Þórisdóttir og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 1. mars 2026 20:04 Um átta hundruð manns voru í komusal Akureyrarflugvallar þegar mest í lét. Hafsteinn Karlsson Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma.
Þessu greinir Hafsteinn frá í samtali við fréttastofu Vísis. „Við vorum komin yfir landið þegar flugstjórinn tilkynnti okkur að hann yrði að fljúga svokallað biðflug yfir landinu. Við sáum fleiri vélar sem flugu í hringi yfir Suðurlandið. Svo var henni beint til Akureyrar á varaflugvöll og þegar við lentum þar sagði hann að það yrði einhver einn og hálfur tími sem þyrfti að bíða,“ sagði hann. Biðin reyndist aðeins lengri. Hafsteinn segir áhöfn vélarinnar hafa staðið sig með prýði. Eftir nokkrar klukkustundir var ljóst að biðin yrði talsvert lengri en lagt var upp með og farþegum hleypt frá borði og inn í komusal flugstöðvarinnar. Fá salerni, lítill matur og súrt loft Skömmu síðar eru farþegar fjögurra fullra farþegaþotna komnir inn í lítinn alþjóðlegan komusal Akureyrarflugvallar, rúmlega 600 manns. Í komusalnum er ekki aðstaða til að taka á móti slíkum fjölda af fólki, fá salerni og lítil sem engin matsala. Hafsteinn KarlssonAðsend Hafsteinn segir alveg ljóst að starfsmenn flugvallarins og flugfélaganna hafi gert sitt besta til að koma til móts við strandaða farþega en furðar sig á því að engin viðbragðsáætlun sé í gildi þegar aðstæður eru eins og þær voru fimmtudaginn síðastliðin. Stóran hluta tímans hafi mörghundruð manns þurft að standa þar sem stólar voru takmarkaðir og engin tilraun hafi verið gerð til að stýra því hverjir fengju sæti enda voru þeir fyrstu inn ekki boðnir og búnir að gefa upp sæti sín. „Á flugstöðinni er mjög lítil matvara til. Það virtist ekki vera neitt nema snakk og sælgæti, gos og bjór og það virtist allt vera selt. Þegar fólk lendir í svona hrakningum hefði verið huggulegt ef einhver hefði hugsað um að gefa okkur eins og eina vatnsflösku eða samloku eða eitthvað. Það er ekki fyrr en það er langt liðið á kvöldið að þá sést einhver pítsasendill koma með pítsakassa sem fer inn á veitingasöluna. Fólk hélt bara að það þyrfti að kaupa þetta eins og allt annað þarna. Enginn lét neinn vita.“ Starfsfólk reynt eftir bestu getu án upplýsinga „Þetta var örugglega meira en helmingurinn útlendingar, margir eflaust að koma í fyrsta sinn til landsins og voru bara óttaslegnir. Það var fólk þarna í panikki. Það var ekkert gert til að taka á móti neinum væri hann veikburða. Það voru ung börn en allir hrúguðust bara inn.“ Hafsteinn segir starfsfólk á flugvellinum hafa staðið sig eins vel og við mætti búast við vægast sagt óvenjulegar og erfiðar aðstæður. Það hafi verið undir gríðarlegu álagi. „Maður spyr sig: hver var aðgerðarstjóri þarna þar sem koma 800 manns í hrakningum?“ Þakkar fyrir að ekki hafi farið verr Hafsteinn sagði upplýsingagjöf engan veginn nægt. „Fólki leið mjög illa og var í örvæntingu að reyna að fá einhvers konar upplýsingar. Starfsfólk þarna reyndi að standa sig vel en höfðu engin svör. Það er eins og enginn hafi verið viðbúinn. Það var engin viðbragðsáætlun virkjuð, eins og maður segir á almannavarnamáli. Það getur myndast panikkástand og maður þakkar bara fyrir að það fór ekki verr.“
Isavia Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Akureyri Akureyrarflugvöllur Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira