Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 2. mars 2026 23:31 Fjölskyldan saman komin. AÐsend Íslendingur búsettur í Kúveit-borg segir að fólk sé beðið um að halda sig innandyra vegna braks frá drónum og flaugum sem hafa verið skotin niður. Hann vonar að árásunum fari að linna en fjölskyldan sé við öllu búin.
Andri Ottesen býr og starfar í Kúveit- borg ásamt eiginkonu, þremur börnum og tengdamóður. Hann var á leikvelli með börnunum sínum þegar loftvarnarflautur byrjuðu að óma á laugardag þegar Íranir skutu drónasprengjum og flaugum að herstöðvum Bandaríkjanna sem eru fyrir utan borgina . Hann segir að síðan þá sé búið að granda um sex hundruð flaugum. „Helsta áhættan, fyrir almenna borgara hérna er að fá eitthvað í hausinn bara sem hefur verið skotið niður. Svo bara svona drasl. Það er víst einn látinn vegna þess og tvö hundruð hafa slasast,“ segir hann. Hann segir að sprengjuregnið hafi dunið á með hléum síðan á laugardag. „Þetta byrjaði klukkan fjögur í nótt og stóð til klukkan tíu í morgun. Fólk er beðið um að halda sig inni. Þannig að við höfum bara gert það. Flestar sprengjurnar eru ætlaðar þessum bandarísku herstöðvum sem eru hérna sitthvorum megin við borgina. Þannig að við erum ekki í þessari svokölluðu skotlínu. Þannig að maður upplifir sig ekkert í mikilli hættu,“ segir hann. Óttast framhaldið fari árásum ekki að linna Andri óttast hins vegar framhaldið dragist árásirnar á langinn. „Það sem við erum helst hrædd við er að eldflaugavarnarsprengjur hér klárist og Íranar sendi öflugri flaugar á borgina sem erfiðara væri að granda,“ segir hann. Fjölskyldan er viðbúin fari allt á versta veg. „Við erum búin að pakka, ef við þyrftum að yfirgefa borgina, bíllinn er fullur af bensíni. Það sem okkur býðst er að keyra til Sádi-Arabíu, til Jeddah og reyna að ná flugi þaðan til Georgíu þar sem fjölskylda konunnar á hús. En við erum að vonast til að þessu ljúki nú bara,“ segir Andri að lokum. Rætt var við Andra í kvöldfréttum en viðtalið við hann hefst á annarri mínútu fréttarinnar.
Kúveit Íslendingar erlendis Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira