Ég hlakka til Alexandra Briem skrifar 3. mars 2026 15:31 Eitt sem hefur vantað í Reykjavík eru virkilega góðar almenningssamgöngur, en á flestum stöðum sem ég hef heimsótt erlendis er lagður töluverður metnaður í þær. Almenningssamgöngur eru skilvirkari og betri leið en aðrar samgöngur til að koma mörgu fólki á fjölfarna staði hratt, án þess að það þurfi að leggja mikið landsvæði undir vegi og bílastæði Áfangastaðurinn verður meira spennandi ef þar er pláss fyrir húsnæði, verslanir og græn svæði, og það kostar ekki rosalega traffík að komast þangað. Það er vissulega ekki þannig að almenningssamgöngur séu alltaf besta valið. Þegar þarf að útrétta mikið, fara með börn á mismunandi staði, skella sér í bústað, o.s.frv, er algjörlega eðlilegt að bíllinn sé fyrsta val. En besta leiðin til þess að vegakerfið sem við höfum nýtist því fólki sem virkilega þarfnast þess að vera á bíl er að það sé ekki líka fullt af af þeim sem ekki þarfnast þess. Bílum fjölgar um 70 á viku Bílastæðum í miðbænum hefur fjölgað á síðustu árum, en fólk upplifir að þeim hafi fækkað vegna þess að bílum fjölgar enn hraðar, eða um ca. 70 á viku. Lögmál rúmfræðinnar bjóða ekki upp á að við getum tekist á við fólksfjölgun og bílafjölgun til lengri tíma með því að breikka vegina sífellt meira, fjölga bílastæðum út í hið óendanlega og byggja endalaus mislæg gatnamót. Sú stærðfræði gengur ekki upp. Það eru vissar lykilaðgerðir og álagspunktar þar sem það getur hjálpað, en sú aðferð getur ekki leyst vandann heilt yfir. Og á endanum myndi hún ryðja burtu öllu því sem fólkið á bílunum sækir í. Reykjavík er í grunninn þannig upp sett, að stærstu vinnustaðirnir og háskólarnir eru á miðbæjarsvæðinu og þar í kring,en lestir íbúar búa í austurhlutanum. Stórir hópar íbúa þurfa því að fara, kvölds og morgna, borgarendanna á milli. Í borg sem er byggð á tiltölulega mjóu nesi, þar sem stórt flugvallarsvæði lokar af stóran hluta rýmisins nálægt miðbænum, liggur beint við að það leiðir til umferðarteppu. Sérstaklega þegar úthverfin eru það strjálbýl að almennt er ekki rekstrargrundvöllur fyrir verslanir og þjónustu í göngufæri.Fólk neyðist hreinlega að sækja það sem það vantar með bílferð. Leiðin til að takast á við þetta er ekki fleiri mislæg gatnamót og bílastæði. Þó svo það hljómi eins og eitthvað sem myndi virka. Blönduð leið er best Það sem virkar er að ráðast að rót vandans. Ein mikilvægasta aðferðin er að þétta byggð og nýta þannig innviðina betur; búa til hverfi þar sem er grundvöllur fyrir verslunum og þjónustu í göngufæri, þannig að einhver hluti ferða geti verið gangandi. Fólk fer kannski áfram keyrandi í vinnuna, og í stórinnkaup, en ef það getur labbað með börn á leikskólann, eða skroppið út í búð gangandi eftir einhverju smálegu, minnkar þörfin fyrir bílferðir. Það sem má alls ekki vanta í þessar breytingar eru virkilega öflugar og góðar almenningssamgöngur í sérrými. Og það er það sem Borgarlínu er ætlað að vera. Þegar fólk er spurt hvernig það vilji ferðast til og frá vinnu eða skóla, eru 20% sem segjast ferðast í bíl í dag en að þau myndu vilja ferðast öðruvísi ef þau upplifðu að það væri mögulegt og gott. Jafnvel þó svo bara hluti af þeim myndi gera það í raun og veru væri það stærsta og besta breytingin sem við gætum farið í til að draga úr umferðartöfum, mengun og svifryki. Það er alls ekki hugmyndin að öll eigi alltaf að nota Borgarlínu í öllum sínum ferðum. En ef heimilisfólk gæti farið hluta sinna ferða til vinnu eða skóla með almenningssamgöngum, þá myndi það hafa ótrúleg áhrif á líf borgarbúa. Borgarlínan flýtir fyrir Þegar almenningssamgöngur koma á 7-10 mínútna fresti, þarf ekki að hugsa út í hvenær þarf að mæta út á stöð til að ná vagninum. Maður mætir bara og tekur næsta vagn. Þegar almenningssamgöngur eru í sérrými halda þær betur tímaáætlun, og skila íbúum hraðar á áfangastað, það skiptir lykilmáli að þær séu ekki fastar í umferðinni. Ég hlakka til að sjá þessar áætlanir raungerast. Þær hafa verið lengi í undirbúningi og vinnslu; það tók tíma að vinna undirbúninginn faglega, það tók tíma að ná samstöðu meðal sveitarfélaga um að fara þessa leið og það tók tíma að semja við ríkið. Síðan tók tíma að semja um fjármögnun og rekstur og útfæra tæknileg atriði. Það versta sem gæti gerst væri að hætta við núna, loksins þegar búið er að útfæra þessa hluti og búið er að semja, þegar við erum loksins tilbúin til að framkvæma það að koma á laggirnar virkilega góðum almenningssamgöngum á Íslandi í fyrsta skipti. Höfundur er borgarfulltrúi Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alexandra Briem Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarlína Borgarstjórn Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar