Sport

Fá bætur eftir að hafa villst vegna for­ystu­bílsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jessica McClain var með forystu á bandaríska hálfmaraþonmeistaramótinu þegar hún villtist af leið.
Jessica McClain var með forystu á bandaríska hálfmaraþonmeistaramótinu þegar hún villtist af leið. getty/Christian Petersen

Þrír keppendur á bandaríska hálfmaraþonmeistaramótinu í Atlanta fá bætur eftir að forystubíllinn fór ranga leið með þá.

Jess McClain var með forystu í hlaupinu og á hæla hennar komu Ednah Kurgat og Emma Hurley.

Þær villtust þegar forystubíllinn fór ranga leið með þær og svo fór að Molly Burn, sem var mínútu á eftir McClain, stóð uppi sem sigurvegari.

McClain endaði í 9. sæti í hlaupinu, Hurley í 12. sæti og Kurgat í því þrettánda.

Þrátt fyrir þetta ákvað mótshaldarinn að veita McClain verðlaunafé eins og hún hefði unnið hlaupið. Hurley og Kurgat skipta svo samanlögðu verðlaunafé fyrir 2. og 3. sætið jafnt á milli sín. Þær voru hnífjafnar þegar þær villtust af leið.

Samkvæmt mótshöldurum þurfti lögregla á staðnum að bregðast við útkalli sem varð til þess að ökumaður forystubílsins ruglaðist. Hann elti mótorhjól þar sem hann hélt að verið væri að breyta leiðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×