Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 07:30 Halldóra Huld Ingvarsdóttir með barnið sitt í fanginu eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í maraþonhlaupi síðasta haust. @halldorahuld Íslandsmeistarinn í maraþonhlaupi kvenna á síðasta ári vekur athygli á ósamræmi í valreglum fyrir utanvegalandslið Íslands og hversu óraunhæft það er fyrir móður að komast í landsliðið eftir barneignir þrátt fyrir að vera komin í gott form.
Halldóra Huld Ingvarsdóttir skrifar pistil á samfélagsmiðla þar sem hún segir sýna slæmu reynslu af því að reyna að vinna sér aftur sæti í landsliðinu eftir barnsburð. Hún fer yfir það hvernig uppgefnar valreglur séu ITRA-listinn en sá listi raðast eftir þremur stigahæstu utanvegahlaupum einstaklinga síðastliðin þrjú ár. Hún var í öðru sæti á listanum í fyrra en hafði þá eignast barn sex mánuðum fyrir HM og var því ekki valin út frá því. Í ár var valið í hópinn fyrir Evrópumótið. Hún var þá í þriðja sæti á ITRA-listanum en þá var allt í einu gefið út að áherslan yrði núna á stigaskor síðasta sumars en ekki síðastliðin þrjú ár eins og áður. Óraunhæft að ná því svo stuttu eftir barneign „Ég hugsaði að fyrst hægt var að horfa fram hjá valreglunum síðast hjá mér væri nú eflaust hægt að gera það aftur núna. Það væri jú óraunhæft að ætla að ég myndi ná inn svo háum stigum stuttu eftir barneignir. Um jólin var ég komin í gott form, hljóp 10 km á mínum langbesta tíma. Það vissu þau. En ólíkt í fyrra vildu þau ekki horfa fram hjá nýja áhersluatriðinu, ekki horfa fram hjá stigaskorun minni rétt eftir fæðingu og meta raunverulega stöðu mína í dag. Ég fékk því ekki sæti í liðinu,“ skrifar Halldóra Huld. Samgleðst þeim sem voru valin í EM-liðið „Ég samgleðst þeim sem fengu val í EM-liðið og þau eiga öll sitt sæti skilið. Þetta snýst ekki um sætið heldur vinnubrögðin sem ég tel óréttlát,“ skrifaði Halldóra Huld sem segist hafa verið svekktari að komast ekki í heimsmeistaramótsliðið í fyrra. „En ég skildi rökin fullkomlega. Áhuginn jókst því bara, ég vildi koma sterkari til baka. Ég hef hins vegar engin rök fengið í ár þrátt fyrir fyrirspurnir. Því voru viðbrögðin önnur en síðast, áhuginn dvínaði mikið,“ skrifaði Halldóra. Finnst það sárast „Það er það sem mér finnst sárast. Þess vegna vil ég opna á umræðuna. Mér finnst hún eiga rétt á sér. FRÍ hefur alla jafna unnið flott starf en það verður að vera hægt að gagnrýna það sem betur má gera. Annars verða aldrei neinar breytingar. Valreglur verða að vera skýrar og gefnar út fyrir fram, ekki eftir á. Rök verða að fylgja ef horfa á fram hjá þeim,“ skrifaði Halldóra. „Það er mikilvægt og krefjandi hlutverk að ganga með barn. Konur sem snúa til baka eftir barneignir eiga að mæta skilningi,“ skrifaði Halldóra en að má lesa allan pistil hennar hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Halldóra Huld Ingvarsdóttir (@halldorahuld)
Frjálsar íþróttir Hlaup Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Fleiri fréttir Bodö/Glimt græddi meira en sex milljarða króna á Evrópuævintýri sínu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ „Takk fyrir ástina“ Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Landsliðin undirbúa sig fyrir HM í beinni Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Hinn fjórtán ára Venni vann í Noregi Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Sjá meira