Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Árni Sæberg skrifar 5. mars 2026 12:22 Kjartan Magnússon er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins en verður það ekki eftir kosningar í maí. Vísir/Einar Kjartan Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að andstæðingum borgarlínunnar í borgarstjórnarflokknum hafi verið bolað af lista fyrir komandi kosningar, eða færðir lengst niður. Þau Marta Guðjónsdóttir bókuðu á borgarstjórnarfundi á dögunum að réttast væri að hætta við verkefnið eins og það leggur sig.
Þetta segir Kjartan í aðsendri grein í Morgunblaði dagsins, undir yfirskriftinni Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu. „Borgarlínan verður líklega stórt mál í borgarstjórnarkosningunum, 16. maí næstkomandi. Hefur hún verið eitt helsta mál borgarstjórnar á kjörtímabilinu enda mikið áherslumál vinstri flokkanna, undir forystu Samfylkingarinnar. Borgarlínan yrði risavaxin opinber framkvæmd, sem hefði þó takmarkaðan ávinning í för með sér, en ýmsar neikvæðar afleiðingar vegna mikils kostnaðar, skattahækkana á almenning og aukinna umferðartafa,“ segir hann meðal annars. Sjálfstæðismenn vilja endurskoða samninginn Hann rekur að á fundi borgarstjórnar síðastliðinn þriðjudag hafi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lagt fram tillögu um að hefja viðræður milli Reykjavíkurborgar, ríkisins og nágrannasveitarfélaga um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og endurskoðun ákvæða hans. Tillagan hafi ekki falið í sér andstöðu við borgarlínu en frekar snúist um forgangsröðun verkefna, samgöngusáttmálann og útfærslu fjármögnunar hans. Tillögunni hafi verið vísað frá af borgarfulltrúum vinstri flokkanna í borgarstjórn. Hann hafi aftur á móti, ásamt Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa, verið þeirrar skoðunar að í tillögunni hefði átt að koma fram andstaða við borgarlínuverkefnið. „Við Marta bókuðum því að við endurskoðun samgöngusáttmálans ætti það að vera skýlaus krafa, að hætt verði við borgarlínuverkefnið í heild sinni.“ Vilja heldur efla Strætó Þau hafi lagt til að í stað borgarlínuverkefnisins yrði lögð áhersla á að efla núverandi strætisvagnakerfi strax með eftirfarandi aðgerðum: Forgangsakreinum strætisvagna verði fjölgað. Forgangur strætisvagna á umferðarljósum verði tryggður með snjalltækni. Úrbætur verði gerðar á biðstöðvum og skiptistöðvum, m.a. með tilkomu upphitaðra biðskýla að erlendri fyrirmynd. Endurnýjun vagnaflotans verði hraðað. Umbætur verði gerðar á leiðakerfinu. „Með slíkum aðgerðum væri hægt að stórefla núverandi strætisvagnakerfi strax í stað þess að bíða í fimm ár eftir borgarlínu með miklum kostnaði og gjaldahækkunum. Slíkar umbætur á strætókerfinu yrðu margfalt ódýrari en borgarlínuverkefnið en myndu að lágmarki gera sama gagn.“ Þessi afstaða þeirra Mörtu sé í fullu samræmi við Reykjavíkurþing Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna, sem haldið var í nóvember síðastliðnum. Í ályktun þingsins hafi alfarið verið lagst gegn borgarlínu en samþykkt að efla núverandi strætisvagnakerfi. Í bókun þeirra Mörtu sé hafnað afdráttarlaust öllum fyrirætlunum um að sérstakur viðbótarskattur verði lagður á Reykvíkinga til að fjármagna borgarlínu. „Aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins stóðu ekki að bókuninni.“ Hvorugt á lista fyrir næstu kosningar Þá rekur hann að skiptar skoðanir hafi verið um borgarlínu meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á kjörtímabilinu. Meirihluti borgarfulltrúa flokksins hafi lagst gegn verkefninu eða fjórir af sex. „Nú hefur helstu gagnrýnendum borgarlínunnar markvisst verið vikið af framboðslista eða þeir settir í áhrifalaus sæti. Afar brýnt er að allir flokkar, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn, svari því afdráttarlaust hvort þeir séu hlynntir eða andvígir borgarlínu og hvernig eigi þá að standa að fjármögnun hennar,“ segir Kjartan að lokum. Hvorki Kjartan né Marta hlutu náð fyrir uppröðunarnefnd Sjálfstæðisflokksins í borginni og komust ekki á lista. Þá er Björn Gíslason, sem hefur greitt atkvæði gegn samgöngusáttmálanum, í tíunda sæti listans. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, sem hefur einnig greitt atkvæði gegn sátttmálanum er aftur á móti í fjórða sæti, sem verður að teljast nokkuð öruggt sæti.
Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Borgarlína Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira