„Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Aron Guðmundsson skrifar 5. mars 2026 14:49 Friðleifur Friðleifsson er formaður langhlaupanefndar FRÍ. Hlaupakonan Halldóra Huld gagnrýndi vinnubrögð við val í landslið Íslands í utanvegahlaupum Vísir/Samsett Formaður langhlaupanefndar Frjálsíþróttasambands Íslands skilur gremju hlaupakonunnar Halldóru Huldar Ingvarsdóttur, sem gagnrýndi vinnubrögð við val í landslið Íslands í utanvegahlaupum, en segir það ekki svo að verið sé að leggja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn.
Halldóra Huld skrifaði pistil á samfélagsmiðlum þar sem hún sagði sína reynslu af því að reyna vinna sér aftur sæti í landsliðinu í utanvegahlaupum eftir barnsburð. Vakti Halldóra athygli á ósamræmi í valreglum fyrir utanvegalandslið Íslands og hversu óraunhæft það er fyrir móður að komast í landsliðið eftir barneignir þrátt fyrir að vera komin í gott form. Fyrir komandi Evrópumeistaramót í utanvegahlaupum var það gefið út, seint á síðasta ári, að farið yrði eftir stigaskori síðasta sumars en ekki síðastliðinna þriggja ára eins og áður hafði verið raunin. Halldóra var í öðru sæti á ITRA listanum í fyrra en hafði þá eignast barn sex mánuðum fyrir HM og var því ekki valin út frá því. Fyrir komandi Evrópumót var hún í þriðja sæti á ITRA-listanum en þá ákveðið að fara eftir árangri síðasta sumars. En á vormánuðum í fyrra eignaðist Halldóra strák. Engin ein algild regla Friðleifur Friðleifsson er formaður Langhlaupanefndar Frjálsíþróttasambands Íslands. Hann segir enga algilda reglu ríkjandi varðandi landsliðsval aðspurður hvers vegna vinnubrögðin hafi verið önnur núna en áður. Ákveðið hafi verið í þetta skipti að hlusta á ábendingar frá hlaupasamfélaginu á þá leið að árangur hlaupara eins nálægt viðkomandi verkefni landsliðsins skildi metinn að verðleikum. „Við horfðum fyrst og fremst bara á árangur hlaupara í fjallahlaupum 2025. Þar notumst við mikið við ITRA listann frá árinu 2025. Við notumst líka við svokallað National League Score. Þar sem að árangur hlaupara í öllum íslenskum utanvegahlaupum árið 2025 er metinn. Við horfðum sérstaklega á þetta. Við horfðum meira að segja líka til þess hvernig fólk var að standa sig í ákveðnum hlaupum á Íslandi því hlaupið á EM, sem verið er að fara í, er 50 km hlaup sem svipar til mjög margra hlaupa á Íslandi. Við vorum einfaldlega að horfa á þetta mjög stíft. Hvernig við gætum búið til besta liðið í kringum það.“ „Frábið mér slíka umræðu“ Halldóra segir vinnubrögðin við valið á landsliðinu hafa gert það að verkum að óraunhæft hefur verið fyrir hana að snúa til baka í liðið eftir barneignir þrátt fyrir að vera komin í gott form. Hverju svarið þið þar? „Ég er bara alls ekki sammála því. Halldóra er frábær hlaupari og ég ítreka að þetta er einn okkar besti hlaupari. Því miður er hún ekki í liðinu þetta árið og ég skil hennar gremju alveg. En það er ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn og þar fram eftir götunum. Bara alls ekki. Ég frábið mér slíka umræðu. Mér finnst hún bara alls ekki eiga rétt á sér. Ég held samt að þetta sé bara fín umræða. Íþróttasamfélagið, ÍSÍ og svo framvegis, þarf kannski að fara hugsa hvernig við eigum að meðhöndla feril afrekskvenna þegar að þær eignast börn. Ég held það sé alveg þess virði að opna þá umræðu og taka hana fyrir á breiðari grunni.“ Verður alltaf einhver ósáttur Halldóra tekur það skýrt fram í sinni færslu að allir hlauparar íslenska landsliðsins fyrir komandi Evrópumót eigi sitt sæti fyllilega skilið. Gagnrýni hennar snúi að vinnubrögðum ekki EM-sætinu sjálfu. Hún hafi engin rök fengið þrátt fyrir fyrirspurnir. View this post on Instagram A post shared by Halldóra Huld Ingvarsdóttir (@halldorahuld) „Ég bara ítreka að það er langhlaupanefnd sem leggur til ákveðið landslið sem er svo staðfest af stjórn FRÍ. Þetta er ekki einn aðili eða tveir að búa til einhvern hóp. Þetta eru margir aðilar sem koma að þessu,“ segir Friðleifur og bætir við að Halldóra hafi fengið svör bæði frá Frjálsíþróttasambandinu og langhlaupanefnd. „Hún hefur fengið frá mér 45 mínútna símtal þar sem ég fer yfir það hvernig staðið var að tillögunni um landsliðið. Nú erum við að senda átta hlaupara á EM í fjallahlaupum. Ísland er undantekningarlaust að senda nánast flesta hlaupara miðað við hvað við erum lítið samfélag. Við erum að leggja gífurlegan metnað í þetta. Það er orðið ofboðslega vinsælt að taka þátt í þessu verkefni. Bæði Evrópu- og heimsmeistaramótum. Íslenskir hlauparar leggja mikið á sig til að komast á þessi mót. Það er líka að keyra upp standardinn á Íslandi. Það er algjörlega frábært en vissulega, þegar það gerist, þá verður alltaf einhver ósáttur yfir því að vera ekki í liðinu eða með það hvernig liðið er valið. Val verður alltaf val. Við munum alltaf vera með spurningar á borð við afhverju er þessi ekki í liðinu? og af hverju er hinn ekki í liðinu? Við hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands þurfum að lifa með því. En það er alls ekki svo að við séum á einhvern hátt að gera konum sem eignast börn ókleift að taka þátt í þessum verkefnum.“ „Ein af okkar allra bestu hlaupurum“ Halldóra Huld eigi frábæra framtíð fyrir sér sem hlaupari. „Hún er ein af okkar allra bestu hlaupurum. Það er EM í sumar, HM á næsta ári, EM svo aftur á þar næsta ári. Það er fullt af verkefnum framundan. Ég ítrekaði það við Halldóru að mér myndi finnast verst af öllu ef útkoman úr þessu væri sú að áhugi hennar á að keppa fyrir Ísland myndi dvína. Það yrði versta útkoman. Hún fær fullan stuðning frá okkur gagnvart því að halda áfram að leggja sig fram, æfa og keppa. Við teljum okkur vera mjög fagleg í þessu. Vinna þetta eins vel og við getum.“
Hlaup Frjálsar íþróttir Mest lesið Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjá meira