Hleypur kílómetra hring hundrað sinnum og stefnir á stigamet Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. mars 2026 09:02 Arnar Pétursson er með háleit markmið fyrir hundrað kílómetra hlaup sitt í Slóveníu. vísir Arnar Pétursson ætlar að hlaupa eins kílómetra hring hundrað sinnum í lok þessa mánaðar og stefnir á slá stigamet Íslendinga í götuhlaupi í leiðinni. Hann segir líkamann eiga að höndla álagið og undirbúninginn aðallega snúa að andlegu hliðinni.
Arnar hefur verið einn albesti hlaupari landsins í langan tíma og undanfarið einbeitt sér að enn lengri vegalengdum en vanalega. Næst á dagskrá er hundrað kílómetra hlaup í Slóveníu þann 28. mars. „Markmiðið þar er að reyna að hlaupa stigahæsta afrek Íslendings í götuhlaupi. Ég þyrfti þá að hlaupa í kringum 3:49 meðal pace í hundrað kílómetra. Það þýðir að ég er að fara í gegnum maraþon á rétt undir 2 tímum og 40 mínútum, og geri það tvisvar og hálfu sinnum,“ sagði Arnar. En þetta hundrað kílómetra hlaup spannar ekki hundrað kílómetra braut heldur er einn og sami eins kílómetra hringurinn hlaupinn hundrað sinnum. Sem verður væntanlega mikil andleg áskorun. „Þarna viltu hugsa bara um tímann, frekar en vegalengdina. Ég veit að ég ætla að vera svona 6 klukkutíma og 20 mínútur, eitthvað í kringum það. Þannig að ég veit bara hversu mikill tími er eftir, en leyfi bara kílómetrunum að koma.“ Arnar er alls ekki óvanur löngum hlaupum og hefur meðal annars unnið Laugavegshlaupið. Arnar er líka byrjaður að undirbúa andlegu hliðina með því að hlaupa mjög tilbreytingalaus hlaup á hlaupabretti. „Ég tók til dæmis maraþonæfingu í gær, þar sem ég hljóp maraþon á brettinu. Stillti bara hraðann á brettinu og hljóp. Það var líka æfing í því að innstilla sig inn á hraðann, ekki hreyfa neitt við brettinu og bara halda.“ Götuhlaupið í Slóveníu verður ekki með eins fjölbreytta leið og flest hlaup. Stigametið sem Arnar stefnir á að slá er í eigu Baldvins Þórs Magnússonar en Baldvin setti stigametið samhliða Íslandsmeti sínu í 10 kílómetra hlaupi í Valencia síðasta janúar. „Þetta gefur manni bara extra hvatningu [að hafa svona markmið]. Af því ég veit að þetta á eftir að verða ógeðslega erfitt á einhverjum tímapunkti, en þá er maður með fleiri hluti til að ýta sér áfram.“ Fjallað var um væntanlegt hundrað kílómetra hlaup Arnars í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Hlaup Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á mettíma Skíðagöngukappinn Johannes Klæbo sópaði til sín sex gullverðlaunum á Vetrarólympíuleikunum og öðlaðist heimsfrægð. Einna helst vakti hann athygli fyrir ótrúlegan hraða í miklum halla í sprettgöngunni, en hversu hratt fór hann og er hægt að leika þetta afrek eftir? 26. febrúar 2026 09:38 Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Hlaupasérfræðingur segir að nýtt Íslandsmet Baldvins Þórs í tíu kílómetra hlaupi komi honum á kortið með betri hlaupurum Evrópu. Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet í 10 kílómetra götuhlaupi um tæpa mínútu í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Hlauparinn hefur verið á mikilli siglingu síðustu mánuði en hann setti Íslandsmet í greininni í október í fyrra. 14. janúar 2026 08:01 Kominn heim með ótrúlegt Íslandsmet: „Fann fyrir miklum létti“ Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon segist hafa átt nær fullkomið hlaup er hann hljóp, fyrstur Íslendinga tíu kílómetra götuhlaup á undir tuttugu og átta mínútum í Valencia á Spáni og tryggði sér þar með þátttökurétt á stóru móti í sumar. 24. janúar 2026 09:32 „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Baldvin Þór Magnússon, hlaupari, hefur verið að setja mörg ótrúleg Íslandsmet undanfarin misseri. Og nú síðast í Valencia í 10 kílómetra götuhlaupi. Baldvin er búsettur erlendis en þessa dagana er hann á landinu til þess einmitt að hlaupa. 3. febrúar 2026 15:01 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Leik lokið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á mettíma Skíðagöngukappinn Johannes Klæbo sópaði til sín sex gullverðlaunum á Vetrarólympíuleikunum og öðlaðist heimsfrægð. Einna helst vakti hann athygli fyrir ótrúlegan hraða í miklum halla í sprettgöngunni, en hversu hratt fór hann og er hægt að leika þetta afrek eftir? 26. febrúar 2026 09:38
Hlaupabrettið kemst ekki upp í hraða Baldvins Hlaupasérfræðingur segir að nýtt Íslandsmet Baldvins Þórs í tíu kílómetra hlaupi komi honum á kortið með betri hlaupurum Evrópu. Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet í 10 kílómetra götuhlaupi um tæpa mínútu í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Hlauparinn hefur verið á mikilli siglingu síðustu mánuði en hann setti Íslandsmet í greininni í október í fyrra. 14. janúar 2026 08:01
Kominn heim með ótrúlegt Íslandsmet: „Fann fyrir miklum létti“ Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon segist hafa átt nær fullkomið hlaup er hann hljóp, fyrstur Íslendinga tíu kílómetra götuhlaup á undir tuttugu og átta mínútum í Valencia á Spáni og tryggði sér þar með þátttökurétt á stóru móti í sumar. 24. janúar 2026 09:32
„Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Baldvin Þór Magnússon, hlaupari, hefur verið að setja mörg ótrúleg Íslandsmet undanfarin misseri. Og nú síðast í Valencia í 10 kílómetra götuhlaupi. Baldvin er búsettur erlendis en þessa dagana er hann á landinu til þess einmitt að hlaupa. 3. febrúar 2026 15:01