Soroptimistar taka þátt í Alþjóðlegum baráttudegi kvenna – því það skiptir máli Katrín Káradóttir skrifar 5. mars 2026 17:33 Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars er jafn mikilvægur nú sem áður. Dagurinn er mikilvægur um allan heim og við, Soroptimistar notum tækifærið og tölum einni röddu fyrir réttindum, öryggi og framtíð kvenna og stúlkna. Þessi dagur er alþjóðlegur vettvangur til að fagna framförum en einnig vettvangur til að draga fram viðvarandi ójafnrétti og knýja fram breytingar í þágu kvenna og stúlkna. Við Soroptimistar vitum að kynjajafnrétti er bæði áfangi sem vert er að fagna og markmið sem við verðum áfram að vinna að. Konur munu halda áfram að móta samfélög, leiða nýsköpun, byggja upp frið og efla réttlæti. Áherslur okkar hvetja okkur til að fagna og finna innblástur af þeim ótrúlega árangri sem konur ná á hverjum degi. Jafnframt minnir það okkur á að áframhaldandi árangur krefst sýnileika og sameiginlegrar skuldbindingar. Árið 2026 leggur Soroptimistasamband Evrópu áherslu á slagorðið „Why it matters“ – konur knýja framfarir. Það skiptir meira máli nú en nokkur sinni fyrr að Soroptimistar séu rödd kvenréttinda, upplýst og trúverðug á tímum þegar jafnrétti á undir högg að sækja. Þótt margt hafi áunnist er enn verk að vinna og Soroptimistar munu áfram vera í fararbroddi með því að magna sameiginlega rödd, fagna árangri okkar og einbeita okkur að því að skapa framtíð þar sem jafnrétti er fyrir alla. Með víðtækri þátttöku sem tengist 8. mars staðfestum við að jafnrétti verður aðeins náð þegar við stöndum saman sem mannkyn og höldum áfram að knýja saman á um raunverulegar sjálfbærar aðgerðir. 20 Soroptimistaklúbbar um allt land munu á margvíslegan hátt minna á Alþjóðlegan baráttudag kvenna. Ég hvet lesendur til að kynna sér nánar fyrir hvað Soroptimistar standa fyrir. soroptimist.is Höfundur er 1.varaforseti Soroptimistasambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars er jafn mikilvægur nú sem áður. Dagurinn er mikilvægur um allan heim og við, Soroptimistar notum tækifærið og tölum einni röddu fyrir réttindum, öryggi og framtíð kvenna og stúlkna. Þessi dagur er alþjóðlegur vettvangur til að fagna framförum en einnig vettvangur til að draga fram viðvarandi ójafnrétti og knýja fram breytingar í þágu kvenna og stúlkna. Við Soroptimistar vitum að kynjajafnrétti er bæði áfangi sem vert er að fagna og markmið sem við verðum áfram að vinna að. Konur munu halda áfram að móta samfélög, leiða nýsköpun, byggja upp frið og efla réttlæti. Áherslur okkar hvetja okkur til að fagna og finna innblástur af þeim ótrúlega árangri sem konur ná á hverjum degi. Jafnframt minnir það okkur á að áframhaldandi árangur krefst sýnileika og sameiginlegrar skuldbindingar. Árið 2026 leggur Soroptimistasamband Evrópu áherslu á slagorðið „Why it matters“ – konur knýja framfarir. Það skiptir meira máli nú en nokkur sinni fyrr að Soroptimistar séu rödd kvenréttinda, upplýst og trúverðug á tímum þegar jafnrétti á undir högg að sækja. Þótt margt hafi áunnist er enn verk að vinna og Soroptimistar munu áfram vera í fararbroddi með því að magna sameiginlega rödd, fagna árangri okkar og einbeita okkur að því að skapa framtíð þar sem jafnrétti er fyrir alla. Með víðtækri þátttöku sem tengist 8. mars staðfestum við að jafnrétti verður aðeins náð þegar við stöndum saman sem mannkyn og höldum áfram að knýja saman á um raunverulegar sjálfbærar aðgerðir. 20 Soroptimistaklúbbar um allt land munu á margvíslegan hátt minna á Alþjóðlegan baráttudag kvenna. Ég hvet lesendur til að kynna sér nánar fyrir hvað Soroptimistar standa fyrir. soroptimist.is Höfundur er 1.varaforseti Soroptimistasambands Íslands.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar