Innlent

Kynnir hve­nær þjóðar­at­kvæða­greiðsla um við­ræður við ESB fer fram

Eiður Þór Árnason og Sunna Sæmundsdóttir skrifa
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Vísir/Kristófer

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkis­ráðherra kynnir þingsá­lyktunar­tillögu um þjóðar­at­kvæða­greiðslu um aðildar­viðræður að Evrópu­sam­bandinu (ESB) á fundi ríkis­stjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaða­manna­fundur þar sem efnis­at­riði til­lögunnar verða kynnt og dag­setning at­kvæða­greiðslunnar.

Í kjölfarið verða þingflokkar ríkisstjórnarinnar kallaðir saman. Miðilinn Politico hafði eftir heimildarmönnum sínum í febrúar að atkvæðagreiðslan gæti farið fram í ágúst. Þá sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi í Póllandi í síðustu viku að hún yrði á næstu mánuðum

Lögum samkvæmt getur atkvæðagreiðslan í fyrsta lagi farið fram þremur mánuðum eftir að þingsályktunartillagan er samþykkt á Alþingi. Þorgerður Katrín sagði við fréttastofu fyrr í vikunni að tryggja þurfi stöðu Íslands í aðildarviðræðum, þar á meðal efnahagslegar varnir og yfirráð yfir fiskveiðiauðlindum.

„Við erum ekki búin að velja daginn en á næstu mánuðum munum við halda þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Kristrún 25. febrúar. „Við munum hlusta á það sem Íslendingar vilja gera en það er gott að heyra að löndin í Evrópu haldi áfram að vera einstök lönd þrátt fyrir að þau gangi í Evrópusambandið.“

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×