Erlent

Noem rekin

Agnar Már Másson skrifar
Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna.
Kristi Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna. AP/Alex Brandon

Kristi Noem hefur verið rekin sem heimavarnaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeildarþingmaðurinn Markwayne Mullin tekur við af henni. Noem verður sett í glænýtt embætti.

Trump greinir frá þessu á Truth Social og skrifar að Noem verði gerð að sérstökum erindreka fyrir leiðtögafundinn „Shield of the Americas.“

Greint var frá því  í dag að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði spurt þingmenn Repúblikanaflokksins á undanförnum dögum hvort þeim fynndist hann eiga að reka Noem, heimavarnaráðherra sinn.

Auglýsingar sem Noem lét gera og þykja fjalla meira um hana en eitthvað annað munu ekki hafa fallið í kramið í Hvíta húsinu og þá sérstaklega svör hennar á þingi um þessar umdeildu auglýsingar og saminga vegna þeirra. 

Ein auglýsingin sýndi Noem á hestbaki við Rushmore-fjall þar sem hún hét því að innflytjendum sem brjóti lög Bandaríkjanna verði refsað.

Uppfærist...




Fleiri fréttir

Sjá meira


×