Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2026 10:32 Árásin er líklega einhver sú mannskæðasta sem Bandaríkjamenn hafa gert í Mið-Austurlöndum á undanförnum áratugum, með tilliti til mannfalls meðal óbreyttra borgara, reynist rétt að þeir hafi gert árásina. Útlit er fyrir að svo sé. AP/Abbas Zaker, Mehr News Agency Rannsakendur Bandaríkjahers telja líklegt að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árás á stúlknaskóla í suðurhluta Íran í upphafi stríðsins þar. Rannsókn þeirra er ekki lokið en að minnsta kosti 175 dóu í árásinni og þar af mest skólastúlkur.
Árásin var gerð laugardaginn 28. febrúar, sama dag og Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu umfangsmiklar árásir á Íran. Þá var ný vinnuvika að hefjast þar í landi og voru börn og kennarar í tímum þegar árásin var gerð. Stór hluti skólans hrundi þegar árásin var gerð. Umræddur skóli er inni á eða í jaðri lóðar herstöðvar í Minab í suðurhluta Íran. Á árum áður var byggingin formlega hluti af herstöðinni en árið 2016 var hún aðskilin herstöðinni með múr sem reistur var kringum skólann. Síðan þá hefur einnig verið bætt við leiksvæðum fyrir utan húsið. Á svipuðum tíma og fregnir bárust af árásinni á skólann voru Bandaríkjamenn að gera árásir á aðrar byggingar í þessari sömu herstöð. Skólahúsið er hér merkt með rauðum hring. Fyrir neðan hann má sjá herstöðina sjálfa, sem skólinn var hluti af á árum áður. Að minnsta kosti sex hús í herstöðinni voru sprengd á sama tíma og skólinn.AP/Planet Labs Sendiherra Íran gagnvart Sameinuðu þjóðunum segir 150 nemendur skólans hafa fallið í árásinni. Verði aðkoma Bandaríkjanna að árásinni staðfest yrði það eitthvert versta slíka atvik í árásum Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum í áratugi. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt að málið sé til rannsóknar en ítrekaði að Bandaríkjamenn hefðu ekki gert vísvitandi árásir á óbreytta borgara. Talsmaður hers Ísraels hefur sagt að hann viti ekki til þess að Ísraelar hafi verið á þessu svæði þegar árásin var gerð. Heimildarmenn Reuters segja bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar hersins gefa til kynna að Bandaríkjamenn hafi gert árás á skólann. Rannsókninni er ekki lokið að fullu. Íranar segja 150 skólastúlkur hafa fallið i árásinni. Í heildina hafi 175 dáið.AP/Amirhossein Khorgooei, ISNA Árásir gerðar á önnur hús á sama tíma Greining blaðamanna New York Times bendir einnig til þess að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á árásinni. Sú greining byggir á gervihnattamyndum, færslum á samfélagsmiðlum og myndböndum, svo eitthvað sé nefnt. Í grein NYT segir að svo virðist sem árásin á skólann hafi verið gerð á sama tíma og ráðist var á önnur hús í flotastöðinni, sem rekin er af Byltingarverði Íran. Þá voru gefnar út opinberar yfirlýsingar um að Bandaríkjamenn væru að gera árásir gegn flota Íran við Hormuz-sund, þar sem umrædd flotastöð er staðsett. Eftir árásina á skólann unnu fjölmargir að því að reyna að bjarga fólki úr rústunum.AP/Abbas Zakeri, Mehr News Agency Engar myndir hafa borist af sprengjubrotum þar sem almenningur og blaðamenn hafa ekki haft aðgang að skólanum en slíkar myndir gætu gert sérfræðingum kleift að staðfesta með hvaða sprengjum árásin hefði verið gerð. Myndefni sem birt var á samfélagsmiðlum sýnir að árásin var gerð um klukkan 11:30 að staðartíma en það staðfestir einnig að á sama tíma voru árásir gerðar á aðrar byggingar nærri skólanum. Gervihnattamyndir sýna að árásir voru gerðar á að minnsta kosti sex aðrar byggingar nærri skólanum.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Hernaður Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Sjá meira