Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Samúel Karl Ólason skrifar 6. mars 2026 11:30 Tony Gonzales hefur setið þrjú tveggja ára kjörtímabil í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og er hættur við að sækjast eftir því fjórða. AP/Blaine Young, San Antonio Express Bandarískur þingmaður lýsti því yfir í nótt að hann ætlaði að stíga til hliðar í forvali Repúblikanaflokksins í kjördæmi hans í Texas. Það er í kjölfar þess að hann viðurkenndi að hafa haldið við aðstoðarkonu sína sem svipti sig lífi. Tony Gonzales segist þó ætla að klára kjörtímabil sitt á þingi. Reglur þingsins banna þingmönnum að eiga í rómantískum samböndum við aðstoðarfólk sitt og Gonzales hafði lengi þrætt fyrir framhjáhaldið við aðstoðarkonu sína, sem svipti sig lífi í september síðastliðnum. Það viðurkenndi hann þó í viðtali á dögunum en sagðist alls ekki bera ábyrgð á dauða hennar. Játningunni kastaði hann fram eftir að óháðir rannsakendur þingsins lögðu til á dögunum að siðferðisnefnd fulltrúadeildarinnar tæki mál Gonzales til rannsóknar og að héraðsmiðill í Texas birti skilaboð milli hans og konunnar þar sem hann þrýsti meðal annars á hana til að senda sér nektarmyndir. Sjá einnig: Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæði hann og Regina Ann Santos-Aviles, umrædd aðstoðarkona, voru gift þegar þau héldu við hvort annað en Gonzalez sagði í viðtalinu að hann hefði ekki talað við hana síðan í júní 2024. Eins og áður segir svipti hún sig lífi í september í fyrra. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Gonzales hefur staðið frammi fyrir áköllum úr flokki sínum um að bæði hætta í forvalinu og um að hætta á þingi en þessi áköll jukust á dögunum. Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar og leiðtogi meirihluta Repúblikanaflokksins, tók undir þessi áköll í gærkvöldi. Í yfirlýsingu sem hann birti á X í nótt sagði Gonzales að hann hafi tekið þessa ákvörðun eftir djúpa hugleiðingu og með stuðningi fjölskyldu sinnar. pic.twitter.com/3FyKF6V3cb— Rep. Tony Gonzales (@RepTonyGonzales) March 6, 2026 Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira
Reglur þingsins banna þingmönnum að eiga í rómantískum samböndum við aðstoðarfólk sitt og Gonzales hafði lengi þrætt fyrir framhjáhaldið við aðstoðarkonu sína, sem svipti sig lífi í september síðastliðnum. Það viðurkenndi hann þó í viðtali á dögunum en sagðist alls ekki bera ábyrgð á dauða hennar. Játningunni kastaði hann fram eftir að óháðir rannsakendur þingsins lögðu til á dögunum að siðferðisnefnd fulltrúadeildarinnar tæki mál Gonzales til rannsóknar og að héraðsmiðill í Texas birti skilaboð milli hans og konunnar þar sem hann þrýsti meðal annars á hana til að senda sér nektarmyndir. Sjá einnig: Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæði hann og Regina Ann Santos-Aviles, umrædd aðstoðarkona, voru gift þegar þau héldu við hvort annað en Gonzalez sagði í viðtalinu að hann hefði ekki talað við hana síðan í júní 2024. Eins og áður segir svipti hún sig lífi í september í fyrra. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Gonzales hefur staðið frammi fyrir áköllum úr flokki sínum um að bæði hætta í forvalinu og um að hætta á þingi en þessi áköll jukust á dögunum. Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar og leiðtogi meirihluta Repúblikanaflokksins, tók undir þessi áköll í gærkvöldi. Í yfirlýsingu sem hann birti á X í nótt sagði Gonzales að hann hafi tekið þessa ákvörðun eftir djúpa hugleiðingu og með stuðningi fjölskyldu sinnar. pic.twitter.com/3FyKF6V3cb— Rep. Tony Gonzales (@RepTonyGonzales) March 6, 2026
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira