Formúla 1

Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kimi Antonelli og George Russell hjá Mercedes tryggðu sér efstu tvö sætin. 
Kimi Antonelli og George Russell hjá Mercedes tryggðu sér efstu tvö sætin.  Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Mercedes ökumennirnir George Russell og Kimi Antonelli voru sneggstir í tímatöku fyrir fyrstu Formúlu 1 keppni ársins í Ástralíu. Isack Hadjar hjá Red Bull var þriðji en liðsfélagi hans, Max Verstappen, klessti út í kant. 

Nýi Mercedes bíllinn er greinilega öflugur í ár og í morgun sýndu Russell og Antonelli almennilega frá því í fyrsta sinn.

Óvíst var með þátttöku unga Ítalans Antonelli sem klessti bílinn á æfingu í gær en það tókst að laga hann í tæka tíð. Antonelli náði besta tíma dagsins áður en Russell fór hringinn.

  1. George Russell - Mercedes (1:18.518)
  2. Kimi Antonelli - Mercedes (1:18.811)
  3. Isack Hadjar - Red Bull Racing (1:19.303)
  4. Charles Leclerc - Ferrari (1:19.327)
  5. Oscar Piastri - McLaren (1:19.380)
  6. Lando Norris - McLaren (1:19.475)
  7. Lewis Hamilton - Ferrari (1:19.478)
  8. Liam Lawson - Racing Bulls (1:19.994)
  9. Arvid Lindblad - Racing Bulls (1:19.971)
  10. Gabriel Bortoleto - Audi (1:20.221)
  11. Nico Hülkenberg - Audi (1:20.303)
  12. Oliver Bearman - Haas (1:20.311)
  13. Esteban Ocon - Haas (1:20.491)
  14. Pierre Gasly - Alpine (1:20.501)
  15. Alexander Albon - Williams (1:20.941)
  16. Franco Colapinto - Alpine (1:21.200)
  17. Fernando Alonso - Aston Martin (1:21.969)
  18. Sergio Pérez - Cadillac (1:22.605)
  19. Valtteri Bottas - Cadillac (1:23.244)
  20. Max Verstappen - Red Bull Racing (X:XX.XXX)

Þá lenti margfaldi heimsmeistarinn Max Verstappen í vandræðum og klessti út í vegg. Liðsfélagi hans hjá Red Bull, Isack Hadjar, átti hins vegar eftir að ná þriðja besta tímanum.

Verstappen hefur áður sagt að hann sé ekki beint hrifinn af breytingunum á bílunum sem tóku gildi á þessu tímabili. Smærri, léttari og meira rafdrifnir bílar heilla hann ekki.

Lewis Hamilton hefur hins vegar liðið vel í nýja Ferrari bílnum en hann náði sjöunda besta tíma dagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×