Þær skipa efstu sæti lista Vor til vinstri Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. mars 2026 15:34 Arna Magnea, Sanna Magdalena og Ásta Dís. Aðsend Sanna Magdalena Mörtudóttir skipar fyrsta sæti lista Vors til vinstri í Reykjavík og þar með efsta sæti sameiginlegs lista þeirra með Vinstri grænum sem ber heitið Vinstrið. Með henni á lista eru Ásta Þórdís Skjalddal og Arna Magnea Danks.
Ásta Þórdís mun vera í fjórða sæti Vinstrisins en hún er núverandi varaborgarfulltrúi fyrir Sósíalistaflokkinn auk þess að vera viðurkenndur bókari og með meirapróf. Í fréttatilkynningu segir að hún hafi starfað að málefnum fátæks fólks, meðal annars í gegnum European Anti Poverty Network á Íslandi og sem samhæfingarstjóri Pepp. Arna Magnea, sem er í þriðja sæti lista Vors til vinstri, verður í fimmta sæti Vinstrisins. Hún hefur starfað á fjölbreyttum stöðum, til að mynda við ræstingar, loðnufrystingar og keyrt sjúkrabíla í Lundúnum í Bretlandi en nú er hún grunnskólakennari og áhættuleikstýra. Hún hefur verið ötul baráttukona fyrir mannréttindum. „Mikill áhugi var á efstu sætunum og margir öflugir einstaklingar gáfu kost á sér. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir traustið og hlökkum til að sjá krafta þeirra nýtast áfram í baráttunni. Það er mikið gleðiefni að sjá þann kraft sem hefur myndast í kringum hreyfinguna og við finnum fyrir miklum meðbyr með framboði Vinstrisins,“ segir í tilkynningunni. Sanna Magdalena er nú borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir hönd Sósíalistaflokksins og leiðir nú Vor til vinstri. Í tilkynningunni segir að hún hafi verið einn sýnilegasti fulltrúi vinstri stefnu í borgarmálum. Listi Vinstrisins ljós Því er í raun skýrt hvernig efri hluti lista Vinstrisins verður. Líf Magneudóttir bar sigur úr býtum í forvali Vinstri grænna, á eftir henni var Stefán Pálsson og svo Finnur Ricart Andrason. Þiggja þeir báðir úthlutuð sæti verður listi Vinstrisins svona: 1. Sanna Magdalena Mörtudóttir (Vor til vinstri) 2. Líf Magneudóttir (VG) 3. Stefán Pálsson (VG) 4. Ásta Þórdís Skjalddal (Vor til vinstri) 5. Arna Magnea Danks (Vor til vinstri) 6. Finnur Ricart Andrason (VG)
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vor til vinstri Reykjavík Borgarstjórn Vinstrið Vinstri græn Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Sjá meira