Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2026 07:01 Flækingshundum er slátrað miskunnarlaust til að hreinsa höturnar fyrir heimsmeistaramótið eftir fjögur ár. Þessi mynd tengist fréttinni ekki beint. Getty/Shirlaine Forrest Marokkó heldur heimsmeistaramótið í fótbolta eftir rúm fjögur ár og Marokkóbúar eru þegar byrjaðir að undirbúa mótið. Hreinsunarstarf gestgjafanna á HM 2030 hefur þó hneykslað marga.
Marokkó mun deila gestgjafahlutverkinu fyrir HM 2030 með Spáni og Portúgal en nú eru yfirvöld þar í landi sökuð um hrottalega meðferð á flækingshundum. „Þetta er hrottalegt og hræðilegt. Öll dýr eiga að fá virðingu,“ segir Niklas Fjeldberg hjá Anima, samtökum sem vinna að því að stöðva dýraníð á landsvísu og alþjóðavísu. Norska ríkisútvarpið fjallar um málið. Í langan tíma hafa dýraverndunarsamtök sakað Marokkó um kerfisbundin fjöldamorð á flækingshundum í aðdraganda mótsins. Það felur meðal annars í sér að „hreinsa“ göturnar. Þá þurfa um þrjár milljónir flækingshunda að hverfa. The kill centre is an abattoir on the edge of Marrakech, away from the gaze of tourists.Here - as in other parts of the country that has just staged AFCON and will co-host the 2030 World Cup - Morocco is attempting to reduce its street dog population.But it is accused of the… pic.twitter.com/2gKowxUvZH— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) January 23, 2026 Alþjóðlegu dýraverndunarsamtökin IAWPC hafa afhent FIFA 91 blaðsíðna skýrslu sem skrásetur það sem þau kalla kerfisbundin brot á réttindum dýra. Hundarnir eru annaðhvort skotnir, eitrað fyrir þeim eða þeir fangaðir með töngum og fluttir burt án þess að sjást aftur, að mati IAWPC. „Við höfum þúsundir mynda, myndbanda og vitnisburða. Við höfum jafnvel skjöl sem sýna pantanir á skotfærunum sem eru notuð,“ segir í yfirlýsingu frá IAWPC. International Animal Welfare Protection Coalition eru alþjóðleg samtök sem samanstanda af yfir 26 dýraverndunarsamtökum um allan heim. Þau vinna að því að stöðva fjöldamorð á flækingshundum og stuðla að mannúðlegum lausnum eins og ófrjósemisaðgerðum og bólusetningum. Fréttamenn frá The Athletic, sem hafa sjálfir heimsótt Marrakess í Marokkó, lýsa einhverju sem gæti líkst sláturhúsi í útjaðri borgarinnar: Vöruhúsi þar sem kjötkrókar hanga úr stálstöngum og starfsmenn í samfestingum spúla gólfin hrein. Þeir segja einnig frá hvítum sendibílum sem koma að vöruhúsinu. „Hægt er að þekkja dýrin inni á öskrunum og klórinu. Það hljómar eins og þau séu mörg,“ lýsir blaðamaður The Athletic. Þrátt fyrir umfangsmikil gögn mæta dýraverndunarsinnar harðri andstöðu frá marokkóskum yfirvöldum. Meðal annars hefur Fouzi Lekjaa brugðist hart við ásökununum. Hann er forseti marokkóska knattspyrnusambandsins, varaforseti afríska knattspyrnusambandsins og hefur setið í ráði FIFA síðan 2021. Á marokkóska þinginu í október vísaði hann öllu málinu á bug sem „samsæri“ og hélt því fram að myndasönnunargögnunum hefði verið hagrætt.
Marokkó HM 2030 í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Íslenski boltinn Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Fleiri fréttir FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Sjá meira