Börnin okkar – sameiginleg ábyrgð Hanna Borg Jónsdóttir skrifar 9. mars 2026 12:01 Við búum í samfélagi sem hefur lengi haft einn grundvallarþráð í sinni sjálfsmynd - að börnum skuli líða vel og að þau fái tækifæri til að blómstra. Það er hluti af okkar samfélagssáttmála og oft ástæða þess að þau sem búið hafa erlendis snúa aftur heim til að ala upp börnin sín. Við vitum að það sem gerist í æsku mótar líf fólks, ekki bara í dag heldur alla tíð. Við erum börn í 18 ár en lifum svo jafnvel til níræðs. Í gegnum líf okkar öll þessi fullorðinsár verður okkur hugsað til æsku okkar – hvernig okkur leið, hver stóð með okkur og hvort einhver tók eftir þegar við þurftum hjálp. Þess vegna skiptir máli að við vöndum okkur. Þúsundir vinna daglega að velferð barna Hér á landi starfa þúsundir framúrskarandi fagfólks sem hafa helgað líf sitt því að vinna með börnum. Kennarar, leikskólakennarar, þjálfarar, félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, læknar, lögreglufólk, sálfræðingar, tómstundaleiðbeinendur og margir fleiri vinna á hverjum degi að því að styðja börn og fjölskyldur þeirra. Þetta er einn af styrkleikum samfélagsins okkar og eitthvað sem við ættum að vera stolt af. En við vitum líka að þegar kemur að velferð barna skiptir samvinna öllu máli og alltaf má gera betur. Enginn einn aðili sér allt. Enginn einn ber alla ábyrgð. Þegar við sameinum krafta okkar náum við betri árangri. Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins er samstarf sem skiptir máli Þess vegna er sérstaklega ánægjulegt að sjá að öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólarnir og íþróttahreyfingin hafa tekið höndum saman á vettvangi Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Þar eru ólík kerfi að vinna saman með eitt markmið: Að tryggja að börn á höfuðborgarsvæðinu fái réttan stuðning á réttum tíma. Dagana 9.–13. mars fer fram fyrsta sameiginlega Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins. Vikan er ekki aðeins vitundarvakning heldur tákn um nýja nálgun – þar sem mismunandi kerfi stilla saman strengi og sameina krafta sína farsæld barna til heilla. Fyrsta skrefið – ekki það síðasta En Farsældarvikan er aðeins fyrsta skrefið. Nú stendur yfir vinna við sameiginlega aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins sem mun meðal annars fela í sér betra upplýsingaflæði milli aðila, samstilltar forvarnir og fræðslu, sameiginlega upplýsingagátt fyrir foreldra, börn og starfsfólk, aukna foreldrafræðslu og samvinnu um viðbrögð við erfiðum aðstæðum barna. Slíkar aðgerðir geta skipt sköpum – ekki síst þegar kemur að því að grípa börn fyrr og styðja fjölskyldur áður en vandinn verður stór. Þegar fullorðnir vinna saman Kjarni málsins er einfaldur: Þegar fullorðnir vinna saman verður lífið betra fyrir börn. Við eigum öll hlut í þessari ábyrgð – sem fagfólk, foreldrar, nágrannar og samfélag. Því farsæld barna er ekki verkefni eins kerfis heldur verkefni samfélagsins alls. Höfundur er verkefnastjóri Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar