ESB-pakkinn er galopinn Bergþór Ólason skrifar 9. mars 2026 14:04 Börn eiga oft erfitt síðustu dagana og klukkustundirnar áður en jólahátíðin gengur í garð. Fallega innpakkaðar gjafir bíða þess að vera opnaðar eftir að klukkan slær sex á aðfangadag. Við þekkjum öll þessa barnslegu og fallegu eftirvæntingu. Eitthvað óráðið í loftinu, allt getur gerst. Viðreisnarfólk er nú um stundir í hlutverki barnsins í aðdraganda jóla. Þingmenn og forysta flokksins iða í skinninu og gleðin er fölskvalaus enda tilgangur alls bramboltsins frá stofnun Viðreisnar nú innan seilingar – að koma Íslandi í Evrópusambandið. Þau eru spennt. Svífa um. Yfirpeppuð. Hátt uppi. En er fólki sem hagar sér þannig í jafn stóru máli treystandi? Þegar yfirvegun víkur fyrir barnslegri gleði og skynsemin víkur fyrir stórmennskubrjálæði. Trúir því nokkur maður að formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra Íslands muni, þegar til kastanna kemur, tala fyrir einhverju öðru en þeim samningi sem liggur fyrir að Ísland fær? Trúir því einhver að hún fari inn í aðlögunarviðræður með hagsmuni td. íslensk sjávarútvegs að leiðarljósi og standi upp í hárinu á ESB-liðum varðandi auðlindirnar? Manneskja sem hefur lagt allt sitt pólitíska þrek í veikja stoðir sjávarútvegs og renna Íslandi undir ESB? Fyrsti tíminn er bestur til að horfast í augu við raunveruleikann og grípa í gömlu góðu skynsemina. Það er nefnilega ekkert óvænt við það hvaða samning Íslandi bíðst að loknum aðlögunarviðræðum við ESB. Það liggur fyrir og allir geta kynnt sér það. Pakkinn er galopinn, uppi á borðum og enginn þarf að bíða þar til klukkan slær sex á aðfangadag. Meira að segja Ríkisútvarpið sagði frá því síðastliðinn föstudag að „engar varanlegar undanþágur séu í boði“ – og birti svo prýðisgott viðtal við Heather Grabbe, sérfræðing hjá Bruegel hugveitunni, sem er alvöru nafn í Brussel-heiminum og aldeilis áhugasöm um viðgang sambandsins og vöxt þess. Í viðtalinu spurði Björn Malmquist, fréttamaður RUV: Er um eitthvað að semja? Heather svaraði: Það er alltaf um eitthvað að semja við ESB. 95% af reglubókum ESB eru óhagganlegar, þar sem ríkin 27 hafa þegar samþykkt þá hluta. Ríki hafa gerst aðilar og þurft að undirgangast alla þá þætti. En; ríki sem vill ganga í sambandið getur alltaf samið um tímalínu innleiðingar ESB-reglna og reglugerða og ESB vill sömuleiðis setja einhvern tímaramma á einhver hlunnindi. Pólskir bændur þurftu til dæmis að bíða í áratug eftir að fá niðurgreiðslur til sín samkvæmt sameiginlegur landbúnaðarstefnu ESB. Það er því rúm til að semja um aðlögunartíma en það er ekki lengur hægt að hafna tilteknum skilmálum (e. there are no opt-outs available anymore). Allt passar þetta við það sem Stefan Fule, þáverandi stækkunarstjóri ESB, sagði forðum á blaðamannafundinum með Össuri Skarphéðinssyni, þáverandi utanríkisráðherra: Það eru engar varanlegar undanþágur frá regluverki ESB. Pakkinn er opinn – ESB er í honum, alveg eins og það er og ekkert öðruvísi. Að halda öðru fram er blekking. Nú þarf að standa í lappirnar, nota skynsemina og verjast aðförinni að Íslandi. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar