Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Jakob Bjarnar skrifar 9. mars 2026 14:51 Hér getur að líta grjótharða kylfinga á Nesvellinum í vondu veðri en þar kostar aðild 150 þúsund krónur, enda er völlurinn þar aðeins níu holur. Dýrust er aðildin að Brautarholti en þar kostar árgjaldið 210 þúsund krónur. vísir/vilhelm Áhugi á golfi virðist takmarkalaus með öllu. Golfforystan leggur allt í að draga alla og ömmu þeirra í golf og sú virðist nú raunin. Flestir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru hvellsprungnir, þar er uppselt, langir biðlistar hafa myndast og verðið fylgir eftirspurninni.
Golftímabilið á Íslandi er stutt. Íslendingar hafa löngum stært sig af því að golf megi heita almenningsíþrótt að teknu tilliti til þess að fólk almennt hafi efni á að stunda íþróttina. En þetta kann nú að vera að breytast. Til að fá forgjöf þurfa menn að vera í klúbbi og má þannig gera ráð fyrir að flestir sem spila golf á Íslandi séu í skráðir þar. Dýrasta ársgjald í golfklúbb er í Golfklúbb Brautarholts. Þar kostar aðild 210 þúsund krónur að vera félagi. Vert er þó að hafa hugfast að Brautarholt býður upp á ýmsa möguleika. Þinniföldum hringjum í takmarkaðri aðild lýkur, þá greiða meðlimir ekki fullt gjald fyrir næstu hringi, heldur fimmtíu prósent fyrir hringinn; Rauð, græn og blá aðild. Ef veður er framúrskarandi og viðkomandi hefur ekkert annað að gera en að spila golf getur sá hinn sami reiknað með því að spila 30 sinnum á ári. Að árgaldið sé komið upp í 210 þúsund krónur þýðir að hver hringur kostar sjö þúsund krónur miðað við það að vera fullur aðili að Brautarholti, svo dýrasti möguleikinn sé skoðaður. Flestir komast miklu sjaldnar á völlinn. Eru mörg dæmi um að menn komist ekki nema tíu sinnum til að spila á sínum heimavelli yfir árið. Sé miðað við aðild að Golfklúbbi Reykjavíkur þýðir það þá að félagsmenn eru að greiða 17.550 krónur fyrir hringinn. Þumalputtareglan er einmitt sú að fullt gjald fyrir hring er tíu prósent af félagsgjaldinu. Golfklúbburinn Oddur er með 195.000 króna árgjald, Golfklúbbur Reykjavíkur krefst 175.500 króna í aðild, Keilir krefst 175.300 króna og GKG 175 þúsund króna. GSÍ birti nýlega á síðu sinni úttekt þar sem sýnir hvað félagsaðild að golfklúbbi kostar:
Golf Golfvellir Félagasamtök Rekstur hins opinbera Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira