Óvirðing við sveitarstjórnarstigið Dýrunn Pála Skaftadóttir skrifar 10. mars 2026 10:30 Sveitarstjórnarkosningar fara fram eftir rétt rúmlega níu vikur, þar sem páskavikan er inni í tímabilinu. Framboð eru að mótast og stefnumál þeirra verða smám saman sýnileg. Fyrir öll sveitarfélög skipta þessar kosningar miklu máli, enda marka þær upphaf næstu fjögurra ára í rekstri og uppbyggingu nærsamfélaga. Þess vegna vekur það furðu og raunar verulegar áhyggjur að ríkisstjórnin skuli nú koma með tillögu að dagsetningu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að ESB á nákvæmlega sama tíma og kosningabarátta sveitarstjórna er að hefjast fyrir alvöru. Með þeirri ákvörðun er verið að kasta stórpólitísku og umdeildu máli inn í umræðu sem ætti fyrst og fremst að snúast um málefni sveitarfélaganna sjálfra. Frá gamalli tíð hefur Alþingi tekið hlé frá störfum sínum í tvær vikur fyrir sveitarstjórnarkosningar. Sú hefð byggir á einfaldri hugsun: að sýna sveitarstjórnarstiginu virðingu og tryggja að umræðan í landinu fái að snúast um málefni nærsamfélaganna en ekki landsmálapólitík. Með páskavikunni sem framundan er starfar þingið í raun aðeins í um sex vikur fram að kosningunum 16. maí. Því vaknar sú spurning hvort ekki hefði verið bæði skynsamlegra og heiðarlegra gagnvart kjósendum að fresta umræðu um ESB fram yfir kosningar. Þannig hefðu sveitarstjórnarkosningarnar fengið að standa á eigin forsendum, án þess að yfir þær væri varpað skugga stærsta álitamáls íslenskra stjórnmála. Þegar ríkisstjórn velur að setja jafn stórt og umdeilt mál á dagskrá á þessum tímapunkti er hætt við að það sé ekki tilviljun heldur meðvituð ákvörðun. Afleiðingin er sú að umræðan færist frá skipulagsmálum, rekstri, innviðum og atvinnumálum sveitarfélaga yfir í deilur um Evrópusambandið. Sem formaður fulltrúaráðs stjórnmálaflokks í sveitarfélagi finn ég vel hversu mikið hver einasta vika og hver einasti dagur skiptir máli í kosningabaráttu sveitarstjórna. Það er því erfitt að skilja hvers vegna ríkisstjórnin telur eðlilegt að skyggja á þessa mikilvægu lýðræðislegu umræðu með landsmálapólitík af þessari stærðargráðu. Það er ekki of seint að staldra við. Sveitarstjórnarkosningar eiga að snúast um sveitarfélögin sjálf. Að blanda þeim saman við eitt stærsta deilumál íslenskra stjórnmála er ekki aðeins óheppilegt, það er einfaldlega óvirðing við sveitarstjórnarstigið og þá lýðræðislegu umræðu sem þar á að fara fram. Höfundur er formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar