Bergrós heldur velli meðal þeirra bestu í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 08:32 Bergrós Björnsdóttir er að mæta til leiks á CrossFit-tímabilinu í frábæru formi. @bergrosbjornsdottir Ísland átti tvo efstu karlana eftir fyrsta hluta opnu undankeppni heimsleikanna í CrossFit en þeir eru ekki lengur efstu Íslendingarnir eftir annan hlutann. Bergrós Björnsdóttir er hins vegar áfram meðal þeirra efstu í heimi eftir aðra vikuna af The Open.
Ungt íslenskt CrossFit fólk stal senunni í æfingu 26.1 og það var auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að þau héldu sér áfram meðal þeirra bestu í heimi. Strákarnir, sem voru tveir efstir í heimi, náðu ekki alveg að fylgja stórskotlegum árangri sínum eftir. Hin nítján ára gamla Bergrós Björnsdóttir er aftur á móti efst af íslenska CrossFit-fólkinu eftir tvær fyrstu vikurnar af CrossFit Open. Hún varð í fimmta sæti í viku eitt og er í sjötta sæti eftir annan hlutann. Áfram í hópi þeirra bestu í heimi. Bergrós náði 34. besta tímanum í æfingu 26.2 þar sem hún kláraði á sjö mínútum og 43 sekúndum. Hún varð sjötíu sekúndum á eftir Frakkanum Cladio Gluck sem vann annan hlutann á 6 mínútum og 33 sekúndum. Æfingin snerist um margar endurtekningar af framstigi með lóð yfir höfði, handlóðasnörum með hvorri hendi, upphífingar, upphífingar á stöng og upphífingar í hringjum. Næstu íslensku konur á eftir Bergrósu eftir tvær fyrstu vikurnar af opna hlutanum eru Steinunn Anna Sveinsdóttir í 202. sæti, Guðbjörg Valdimarsdóttir í 203. sæti og Elín Bira Hallgrómsdóttir í 229. sæti. Katrín Tanja Davíðsdóttir tók þátt í The Open og er í 1610. sæti á heimsvísu en hún er hætt að keppa og því aðeins að taka þátt í opna hlutanum til gamans. Annar reynslubolti, Björgvin Karl Guðmundsson, er aftur á móti kominn upp í efsta sætið hjá íslensku körlunum eftir 26.2 hlutann en hann er í 36. sæti á heimsvísu. Björgvin Karl náði 21. besta tímanum í annarri viku The Open og hoppaði úr 104. sæti eða upp um 68. sæti. Bjarni Leifs, sem var efstur eftir 26.1 æfinguna, er dottinn niður í 38. sætið en hann var með 152. besta árangurinn í öðrum hluta undankeppninnar. Rökkvi Hrafn Guðnason féll úr öðru sætinu alla leið niður í 114. sæti en hann var bara með 392. besta árangurinn í 26.2. Næstu Íslendingar eru síðan Viktor Ólafsson í 434. sæti og Brynjar Ari Magnússon í 654. sæti.
CrossFit Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Sjá meira