Það er gott að vera Halldór Benjamín í Kópavogi: Hluti 1 af 4 Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar 11. mars 2026 10:00 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn hafa nú samþykkt að Kópavogsbær taki að sér að reka Vetrargarðinn í Smáralind. Fyrir það er áætlað að bærinn greiði um 1,5 milljarð króna á samningstímanum. Um er að ræða tíu ára óuppsegjanlegan samning. Áformað er að rýmið verði menningarkjarni sem meðal annars hýsir bókasafn. Markmiðin eru að efla læsi og að auka áhuga barna og ungmenna á lestir. Efla félagslega velferð, auka menningarþátttöku, bæta aðgengi að menningu og styðja við geðheilsu og forvarnir fyrir börn og ungmenni. Einnig á þetta að vera staður til að „bara vera“, eða „chillout“, eins og það var útskýrt. Rýmið á að geta tekið við „open mic“ pop-up viðburðum, smiðjum, tónleikum og óhefðbundnum uppákomum. Bæjarfulltrúar tókust á um þetta mál í bæjarstjórn í gær. Hugmyndin kom inn og samþykkt á slíkum hraða að nú hlýtur Halldór Benjamín í Smáralind að skrifa aðra grein þar sem hann þakkar bæjarstjóranum í Kópavogi fyrir frábært samstarf, engar hindranir, skilvirkni og fagmennsku. Það hefur komið fram í fjölmiðlum að hann vill hafa meirihluta sem skilur að hlutverk þeirra er að hlúa að atvinnuuppbyggingu. Eftirfarandi kom fram í Pinterest-glærunum við kynningu þessarar ákvörðunar: „Verkefnið er þróað af Heimum í samstarfi við Kópavogsbæ og styrkir Smáralind sem áfangastað verslunar og þjónustu þar sem matur og menning fléttast saman í heildstæða upplifun“ Fjárhagsstaðan er ekki frábær En aðeins um fjármálin, því það hefur alls ekki verið gert ráð fyrir þessu Smáralindarævintýri í neinum fjárhagsáætlunum. Það var reyndar ekki vinsælt að fjalla um fjármálin í bæjarstjórn. Við þóttum púkaleg að skemma stemninguna fyrir þessari flippuðu hugmynd, eins og þau orðuðu hana sjálf. Samkvæmt áætlun á Kópavogsbær að skila 180 milljónum “í afgang” í ár og svipað næstu þrjú árin. Til þess að svo megi vera þarf árlegar lántökur upp á að jafnaði 3 milljarða. Veltuféð frá rekstri dugar ekki fyrir afborgunum lána og fjárfestingum. Það er því ekki um neinn raunverulegan afgang að ræða. Við erum rekin á um 5 milljarða yfirdrætti á 10% vöxtum og lausafé er af skornum skammti. Það er nú þegar búið að veita heimild til hækkunar á yfirdrættinum um 1 milljarð og enn frekari lántökum á þessu ári. Bæjarstjórinn hefur farið mikinn í að kynna hagræðingartillögur sínar í fjölmiðlum. Við höfum ekki enn séð neitt uppgjör á því hvernig til hefur tekist, nema að hún gleymdi reyndar að lækka laun kjörinna fulltrúa í tæpt ár, en það var einmitt aðalfréttin í hagræðingunni til að eiga fyrir bættum launakjörum kennara. Hún lagði m.a til að lækka akstursgreiðslur til þeirra sem sinna velferðarþjónustu en hafnaði tillögu okkar um að lækka hennar eigin akstursgreiðslur. Bæjarstjórinn þiggur fastan aksturstyrk upp á 1250 kílómetra á mánuði og hefur nú hafið framleiðslu á nýrri þáttaröð „Á rúntinum - Á trúnó með bæjó“ Staða fjármála í Kópavogi er langt frá því að vera frábær og það er lítið svigrúm fyrir gæluverkefni . Þvert á móti þá þyrfti að fara í verulega fjárhagslega tiltekt. Það verður verkefni nýrrar bæjarstjórnar í vor. Það sem mátti ekki spyrja um Okkur var auðvitað hafnað um frest, en mig langaði t.d að spyrja skólasamfélagið í Kópavogi, stjórnendur og kennara, hvort þetta væri skynsamlegasta forgangsröðunin á fjármagni að opna bókasafn í Smáralind til þess að styðja við læsisáætlanir? Mig langaði að taka opna umræðu um það hvort það væri hlutverk Kópavogsbæjar að reka Vetrargarðinn í Smáralind fyrir Heima og borga fyrir það á annað hundrað milljónir á ári? Öllum athugasemdum fulltrúa utan meirihlutans var mætt með skætingi. Ég er kannski ekki nógu flippuð fyrir pop-up og chillout á kostnað skattgreiðenda á sama tíma og við getum ekki sinnt velferðarþjónustunni og styrkt skólana til að hlúa að börnum með fjölþættan vanda. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Theódóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar